Meirihluti andvígur inngöngu í ESB

Ný könnun MMR sýnir að meirihluti þjóðarinnar er andvígur inngöngu í ESB en rúmleg fjórðungur hlynntur.

esbmynd.jpg
Auglýsing

Dag­ana 6. til 9. maí kann­aði MMR afstöðu almenn­ings gagn­vart því að Ísland gangi í Evr­ópu­sam­bandið (ES­B). Í ljós kom að yfir helm­ingur svar­enda (51,4%) kváð­ust and­vígir eða mjög and­vígir því að Ísland gangi í Evr­ópu­sam­band­ið, en rétt rúm­lega fjórð­ungur (27,1%) svar­enda sögð­ust hlynntir eða mjög hlynntir því að Ísland gangi í Evr­ópu­sam­band­ið.

Þetta kemur fram í frétt frá MMR.

Tölu­verður munur er á afstöðu fólks til ESB eftir sam­fé­lags­legri stöðu og búsetu, að því er segir í frétt MMR. „Þegar afstaða almenn­ings gagn­vart inn­göngu Íslands í ESB er skoðuð eftir sam­fé­lags­hópum kemur í ljós að fólk sem búsett er á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er mun hlynnt­ara inn­gögnu Íslands í ESB heldur en fólk sem býr á lands­byggð­inni. Eldri ald­urs­hópar og konur eru einnig lík­legri til að vera and­víg inn­göngu í ESB heldur en karlar og þau sem yngri eru. Þau sem búa á tekju­hærri heim­ilum virð­ast einnig vera lík­legri til að vera hlynnt inn­göngu Íslands í ESB,“ segir í frétt­inni.

Auglýsing

Afstaða til ESB.



Lang­flest þeirra sem styðja rík­is­stjórn­ina eru and­víg inn­göngu Íslands í ESB, en meðal þeirra sem styðja ekki rík­is­stjórn­ina eru ívið fleiri sem eru hlynnt inn­göngu Íslands í ESB. Þá er stuðn­ings­fólk Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­manna mun lík­legra til að vera and­vígt inn­göngu Íslands í ESB, en flestir stuðn­ings­manna Sam­fylk­ing­ar­innar eru hlynntir inn­göngu í ESB. Meðal stuðn­ings­manna Pírata er meiri­hluti hlynntur inn­göngu Íslands í ESB, en jafn­ari dreif­ing er á afstöðu stuðn­ings­manna Vinstri-grænna og Bjartrar fram­tíð­ar.

Úrtak könn­un­ar­innar voru ein­stak­lingar 18 ára og eldri valdir handa­hófs­kennt úr hópi álits­gjafa MMRSvar­fjöldi var 947 ein­stak­ling­ar.

Dag­setn­ing fram­kvæmd­ar: 6. til 9. maí 2016.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None