Frjósemi aldrei minni en í fyrra

Árið 2015 fæddust 4.129 börn á Íslandi, sem er nokkur fækkun frá árinu 2014 þegar það fæddust 4.375 börn.

mivikudagur-i-reykjavik_20109593282_o.jpg
Auglýsing

Helsti mæli­kvarði á frjó­semi, sam­kvæmt alþjóð­legum stöðl­um, er fjöldi lif­andi fæddra barna á ævi hverrar konu. Yfir­leitt er miðað við að frjó­semi þurfi að vera um 2,1 barn til þess að við­halda mann­fjöld­anum til lengri tíma lit­ið, sam­kvæmt  frétt Hag­stofu Íslands í dag.

Árið 2015 var frjó­semi íslenskra kvenna 1,81 barn á ævi hverrar konu og hefur hún aldrei farið lægra frá því að mæl­ingar hófust árið 1853. Árin 2013 og 2014 var frjó­semi 1,93 en það er næst lægsta frjó­semi sem hefur mælst hér á landi. Und­an­far­inn ára­tug hefur frjó­semi á Íslandi verið rétt um tvö börn á ævi hverrar konu.

Frjó­semi á Íslandi hefur verið með því hæsta sem ger­ist í Evr­ópu á síð­ustu árum. Árið 2014 var frjó­semi yfir tveimur í Frakk­landi (2,01) og í Tyrk­landi (2,17) en þess utan voru öll löndin undir tveim­ur. Þá var frjó­semi að með­al­tali 1,58 í 28 löndum Evr­ópu­sam­bands­ins árið 2014. Síð­ustu ár hefur fæð­ing­ar­tíðnin innan álf­unnar verið lægst í löndum Suð­ur­-­Evr­ópu og er árið 2014 engin und­an­tekn­ing en fæð­ing­ar­tíðni var 1,23 í Portú­gal, 1,30 á Grikk­landi og 1,31 á Kýp­ur.

Auglýsing

Frjósemi.

Eins og við má búast voru flest nýfædd börn í fyrra skrá­sett með lög­heim­ili í Reykja­vík (1.574), í Kópa­vogi (445) og í Hafn­ar­firði (373). Flestar fæð­ingar voru í júlí­mán­uði (385) en fæstar í des­em­ber (297). Árið 2014 fædd­ust flest börn í júlí (435) og fæst í des­em­ber og apríl (323). 

Algeng­asti barn­eigna­ald­ur­inn er á milli 25-29 ára. Á þessu ald­ur­bili fædd­ust 116 börn á hverjar 1.000 konur í fyrra. Fæð­ing­ar­tíðni mæðra undir tví­tugu í fyrra var 7,9 börn á hverjar 1.000 kon­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None