Gjaldeyrisútboð áformað í næsta mánuði

Lokahnykkurinn í áætlun um losun fjármagnshafta er framundan.

Bjarni Benediktsson
Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra mælti nú síð­degis fyrir frum­varpi á Alþingi sem markar næstu skref við losun fjár­magns­hafta á Íslandi, að því er segir í til­kynn­ingu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. „Frum­varpið er liður í heild­stæðri aðgerða­á­ætlun um losun fjár­magns­hafta sem stjórn­völd kynntu í júní á síð­asta ári. Fyrsta skrefið í þeirri áætlun var að leysa þann vanda sem slitabú fall­inna fjár­mála­fyr­ir­tækja höfðu skapað og hefur sá þáttur verið til lykta leiddur að fullu,“ segir enn frem­ur.

Frum­varpið er umfangs­mikið, enda marg­vís­leg flókin álita­mál sem taka þarf til­lit til. Sam­tals er það á 42 síð­u­m. 

Aflandskrónu­eign­ir, sem mynda það sem oft er nefnt hengja aflandskróna, eru nú yfir 300 millj­arðar króna og er „lík­legt talið að eig­endur þeirra kysu að umbreyta þeim í gjald­eyri ef slíkt væri heim­ilt“ eins og segir í til­kynn­ingu stjórn­valda. 

Auglýsing

Það gæti haft nei­kvæð áhrif á greiðslu­jöfnuð og fjár­mála­legan stöð­ug­leika lands­ins. Dæmi um slíkar eignir eru inn­stæð­ur, fjár­munir á fjár­vörslu­reikn­ingi, skulda­bréf og víxl­ar. Aflandskrónu­r­eignir verða áfram háðar sér­stökum tak­mörk­unum en meg­in­til­gangur frum­varps­ins er að aðgreina aflandskrónu­eignir nánar en nú er gert  og með tryggi­legum hætti, þannig að stöð­ug­leiki hag­kerf­is­ins vernd­ist eins og best verður kosið við fram­kvæmd útboðs­ins.

Verði frum­varpið að lögum er áformað að Seðla­banki Íslands haldi gjald­eyr­is­út­boð í næsta mán­uði þar sem öllum aflandskrónu­eig­endum verður gef­inn kostur á að skipta aflandskrónu­eignum sínum í evr­ur.

Þær aflandskrónu­eignir sem ekki verða nýttar í útboði Seðla­bank­ans munu sæta þeim tak­mörk­unum sem boð­aðar eru í frum­varp­inu.

Í tæp átta ár hafa fjár­magns­höftin tak­markað áhættu­dreif­ingu í eigna­söfnum inn­lendra aðila og heft mögu­leika fyr­ir­tækja til að nýta sam­starfs­verk­efni við erlenda aðila og ávöxt­un­ar­tæki­færi erlend­is. Efna­hags­legt óhag­ræði sem af þessu hlýst fer vax­andi með tím­an­um.

Þessi liður í áætlun stjórn­valda um losun fjár­magns­hafta leggur grunn­inn að næstu skrefum í átt til los­unar gjald­eyr­is­hafta og munu þau snúa „að heim­ilum og fyr­ir­tækjum á Íslandi“ segir í til­kynn­ing­unni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None