Framsóknarmenn vilja aðgerðir í verðtryggingarmálum fyrir kosningar

Þingmenn Framsóknarflokksins segja nú að þeir vilji aðgerðir í verðtryggingarmálum áður en samþykkt verði að ganga til kosninga. Verðtryggingin er þó ekki á meðal þeirra mála sem ríkisstjórnin lagði fram sem forgangsmál sín.

Sigmundur Davíð
Auglýsing

Að minnsta kosti þrír þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins vilja ein­hvers konar aðgerðir í verð­trygg­ing­ar­málum áður en sam­þykkt verður að ganga til kosn­inga. Slík mál eru þó ekki á for­gangs­lista rík­is­stjórn­ar­inn­ar, sem lagður var fram eftir að rík­is­stjórn Sig­urðar Inga Jóhanns­sonar tók við í byrjun apr­íl. 

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, kom inn á þessi mál í við­tölum um síð­ustu helgi. Afnám verð­trygg­ingar væri eitt þeirra mála sem ætti eftir að leiða til lykta. 

Elsa Lára Arn­ar­dótt­ir, þing­maður flokks­ins, segir að klára þurfi „að­gerðir er varða verð­trygg­ing­una,“ meðal ann­arra mála. Þegar þessum málum sé lokið sé tíma­bært að ganga til kosn­inga. Willum Þór Þórs­son tekur í sama streng. „Tím­inn til þess að klára mik­il­væg mál er mjög knappur mtt kosn­inga í haust.  Ég nefni hús­næð­is­mál­in, verð­trygg­ing­una, fæð­ing­ar­or­lofs­mál og fjöl­mörg á borði efna­hags- og við­skipta­nefnd­ar.“ 

Auglýsing

Mikið rætt um afnám verð­trygg­ingar

Fram­­sókn­­ar­­flokk­­ur­inn ræddi mikið um afnám verð­­trygg­ing­­ar­innar í aðdrag­anda síð­­­ustu kosn­­inga. Í pistli fyrir kosn­­ing­­arn­­ar, sem nefnd­ist Fram­­sókn­­ar­­stjórn eða verð­­trygg­ing­­ar­­stjórn, sagði Sig­­mundur Davíð meðal ann­­ars að staðan væri ekki flókin og ljóst væri að annað hvort yrði rík­­is­­stjórn mynduð um skulda­­leið­rétt­ingu, afnám verð­­trygg­ingar og heil­brigð­­ara fjár­­­mála­­kerfi, eða rík­­is­­stjórn þeirra sem væru gegn þessum mál­u­m. 

Í stefn­u­­skrá Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins fyrir síð­­­ustu kosn­­ingar var þessi stefna einnig tíund­uð. Þar sagði að flokk­­ur­inn ætl­­aði sér að afnema verð­­trygg­ingu á neyt­enda­lán­­um. Undir þeim lið sem fjall­aði um þá aðgerð sagði m.a.: „Fyrsta skrefið verði að setja þak á hækkun verð­­trygg­ingar neyt­enda­lána". Slíkt þak hefur ekki verið sett það sem af er kjör­­tíma­bil­inu.

Í stefn­u­yf­­ir­lýs­ingu rík­­is­­stjórnar Fram­­sókn­­ar­­flokks og Sjálf­­stæð­is­­flokks var þess vegna fjallað nokkuð mikið um verð­­trygg­ingu. Þar kom meðal ann­­ars fram að leið­rétta ætti verð­­tryggð lán sem hefðu orðið fyrir verð­­bólg­u­skoti og að sam­hliða þeirri skulda­­leið­rétt­ingu ætti að „breyta sem flestum verð­­tryggðum lánum í óverð­­tryggð“. Ekk­ert var hins vegar skjal­­fest þar um afnám verð­­trygg­ing­­ar.

For­­sæt­is­ráðu­­neytið skip­aði þó starfs­hóp til að und­ir­­búa afnám verð­­trygg­ingar skömmu eftir að rík­­is­­stjórnin tók til starfa. Hann komst að þeirri nið­­ur­­stöðu árið 2014 að það ætti ekki að afnema verð­­trygg­ingu.

Bjarni segir að verð­­trygg­ing verði alls ekki afnumin

Bjarni Bene­dikts­­son fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra hefur sagt opin­ber­­lega að það standi alls ekki til að afnema verð­­trygg­ingu. Þó hefur verið unnið að frum­varpi um breyt­ingar á verð­­tryggðum lánum í fjár­­­mála- og efna­hags­ráðu­­neyt­inu. Þær breyt­ingar áttu að þrengja að 40 ára jafn­­greiðslu­lánum og fara með þau niður í 25 ár. Það frum­varp hefur ekki verið á þing­­mála­­skrá rík­­is­­stjórn­­­ar­inn­­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None