Píratar vilja að ríkið segi upp samningi við kirkjuna um laun presta og kirkjujarðir

Þingflokkur Pírata vill að ríkisstjórnin segi upp samningi ríkisins við þjóðkirkjuna um laun presta og kirkjujarðir. Ríkið hefur greitt yfir 33 milljarða til kirkjunnar frá því að samkomulagið tók gildi árið 1997.

Allir þingmenn Pírata eru flutningsmenn þingsályktunartillögunnar.
Allir þingmenn Pírata eru flutningsmenn þingsályktunartillögunnar.
Auglýsing

Þing­flokkur Pírata vill að rík­is­stjórnin segi upp samn­ingi ríkis og kirkju um laun presta og kirkju­jarð­ir. Þings­á­lykt­un­ar­til­laga þess efnis hefur verið lögð fram og eru allir þrír þing­menn flokks­ins flutn­ings­menn. 

Þar er lagt til að rík­is­stjórnin hefji und­ir­bún­ing að upp­sögn sam­komu­lags við þjóð­kirkj­una um kirkju­jarðir og launa­greiðslur presta og starfs­manna þjóð­kirkj­unnar frá árinu 1997. Þá er lagt til að stefnt verði að því að sam­komu­lag­inu og öðrum tengdum samn­ingum verði end­an­lega slitið fyrir árs­lok 2020.

33,5 millj­arðar frá rík­inu síðan 1997

Fram hefur komið í fréttum und­an­farin ár að prestar sem nýta hlunn­indi kirkju­jarða sem þeir búa á fái sam­tals tugi millj­óna króna árlega í arð af þeim. Í við­tali við Kast­ljós árið 2014 sagði Agnes M. Sig­urð­ar­dótt­ir, biskup Íslands, að þetta fyr­ir­komu­lag væri ekki sann­gjarnt, einkum þegar haft er í huga að margar sóknir á lands­byggð­inni eigi i fjár­hags­erf­ið­leik­um.

Auglýsing

Í fyrra hafði ríkið greitt rúm­lega 33 millj­arða króna til þjóð­kirkj­unnar á grund­velli sam­komu­lags­ins frá því að það tók gildi árið 1997. Þó hefur aldrei verið gert verð­mat á jörð­unum sem ríkið eign­að­ist með sam­komu­lag­inu og eng­inn listi er til yfir þær. Fram kom á mbl.is að litið sé á sam­komu­lagið sem fulln­að­ar­­­upp­­­gjör á kirkju­jörð­unum en engu að síður er ríkið skuld­bundið til að greiða af jörð­unum ótíma­bundið sam­­kvæmt því.

Ríkið ekki kannað lög­mæti til fulln­ustu

Í grein­ar­gerð með þings­á­lykt­un­ar­til­lögu Pírata segir að stærstan hluta 20. aldar hafi óvissa ríkt um eign­ar­hald kirkju­jarða. Þegar sam­komu­lag milli íslenska rík­is­ins og þjóð­kirkj­unnar um kirkju­jarðir og launa­greiðslur presta og starfs­manna þjóð­kirkj­unnar var und­ir­ritað 10. jan­úar 1997 hafi verið horft til álits­gerðar kirkju­eigna­nefndar frá árinu 1984 og umfjöll­unar um þær eignir sem þar voru teknar fyr­ir. Þá hafi ríkið ekki kannað til fulln­ustu lög­mæti fyrri samn­inga, né heldur hvaða jarðir til­heyrðu þeim, mats­verð þeirra og rekstr­ar­upp­gjör var engu síður gerður samn­ingur um áfram­hald­andi skuld­bind­ingar rík­is­ins við þjóð­kirkj­una. 

Rúmur tími til verks­ins

Birgitta segir í pistli á síðu Pírata að flutn­ings­menn til­lög­unnar telja ljóst að ríkið sé löngu búið að greiða fyrir þær kirkju­jarðir sem það fékk afhentar með sam­komu­lag­inu um kirkju­jarðir og launa­greiðslur presta og starfs­manna þjóð­kirkj­unnar frá árinu 1997. Ríkið hafi nú þegar greitt um 1,5 millj­arð á ári vegna sam­komu­lags­ins. 

„Í til­lög­unni er gert ráð fyrir rúmum tíma til verks­ins. Verði til­lagan sam­þykkt kæmi það til kasta þings­ins á næsta kjör­tíma­bili að sam­þykkja þær laga­breyt­ingar sem gera þarf til að umræddu sam­komu­lagi rík­is­ins og þjóð­kirkj­unnar verði end­an­lega slit­ið,“ segir Birgitta.

Hér er hægt að nálg­ast yfir­lit yfir jarðir kirkj­unn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None