Undirbýr frumvarp til að aftra lokun flugbrautarinnar

Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins í norðausturkjördæmi, ætlar að leggja fram frumvarp sem koma á í veg fyrir lokun neyðarbrautarinnar svokölluðu.
Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins í norðausturkjördæmi, ætlar að leggja fram frumvarp sem koma á í veg fyrir lokun neyðarbrautarinnar svokölluðu.
Auglýsing

Hösk­uldur Þór­halls­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­maður umhverf­is- og sam­göngu­nefndar Alþing­is, ætlar að leggja fram frum­varp á Alþingi þegar það kemur saman aftur sem mundi koma í veg fyrir að norð­aust­ur/suð­vest­ur­-flug­braut­inni verði lok­að. Hæsti­réttur stað­festi á dög­unum dóm Hér­aðs­dóms Reykja­víkur um að braut­inni skyldi lokað í sam­ræmi við sam­komu­lag inn­an­rík­is­ráð­herra við Reykja­vík­ur­borg.

„Frum­varpið myndi festa í lög að flug­völl­ur­inn yrði í óbreyttri mynd, á þeim stað sem hann er, þar til Alþingi hefur tekið ákvörðun um annan val­kost, og enn fremur að sá val­kostur sé til­bú­inn,“ er haft eftir Hös­k­uldi í Morg­un­blað­inu í dag. Hann segir að ekki megi loka „mik­il­væg­asta sam­göngu­mann­virki þjóð­ar­innnar þegar ekk­ert annað er í boði, heldur aðeins vanga­veltur um hvað muni koma í stað­inn.“

Reykja­vík­ur­borg stefndi rík­inu vegna ákvörð­unar Ólafar Nor­dal, inn­an­rík­is­ráð­herra, um að standa ekki við sam­komu­lag sem gert var haustið 2013, í tíð Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu við Jón Gnarr þegar hann var borg­ar­stjóri, um að loka þriðju flug­braut­inni á Reykja­vík­ur­flug­velli. Upp­bygg­ing íbúða­hvefis er þegar hafin við aust­ari enda flug­braut­ar­innar sam­kvæmt aðal­skipu­lagi sem unnið var í sam­ræmi við sam­komu­lag borg­ar­innar og rík­is­ins.

Auglýsing

Hér­­aðs­­dómur dæmdi í mál­inu í mars og komst að þeirri nið­­ur­­stöðu að loka eigi braut­inni. Í dóms­orði sagði að inn­­an­­rík­­is­ráð­herra eigi að end­­ur­­skoða skipu­lags­­reglur til sam­ræmis við þá lok­un. Hæsti­réttur stað­festi dóm hér­aðs­dóms á fimmtu­dag.

For­svars­menn flug­fé­lag­anna sem sinna inn­an­lands­flugi eru einnig sam­tali við Morg­un­blað­ið. Þeir eru á sama máli um að lokun þriðju flug­braut­ar­innar í Vatns­mýri muni hafa áhrif á rekstur félaga þeirra. Reykja­vík­ur­flug­völlur sé ekki oft lok­að­ur; aðeins nokkra daga á ári, en þeim dögum mun fjölga um helm­ing verði flug­braut­inni lokað sam­kvæmt áætl­unum Flug­fé­lags Íslands.

Lokun hefur lengi staðið til

Lokun braut­­­ar­innar hefur staðið árum sam­­­an. Árið 2005 und­ir­­­rit­uðu þá­ver­andi borg­­­ar­­­stjóri Stein­unn Val­­­dís Ósk­­­ar­s­dóttir og þáver­andi sam­­­göng­u­ráð­herra Sturla Böðv­­­­­ar­s­­­son sam­komu­lag um sam­­­göng­u­mið­­­stöð sem rísa skyldi í Vatns­­­­­mýr­inni. Hún átti að rísa þar sem braut 06/24 er. Árið 2009 und­ir­­­rit­uðu Krist­ján L. Möll­er, þáver­andi sam­­­göng­u­ráð­herra, og Hanna Birna Krist­jáns­dótt­ir, þáver­andi borg­­­ar­­­stjóri, sam­komu­lag um að brautin ætti að loka, en þó var sá fyr­ir­vari á því sam­komu­lagi að það myndi rísa sam­­­göng­u­mið­­­stöð við enda brautar 06/24.

Í októ­ber 2013 und­ir­­­rit­aði Hanna Birna, þá inn­­­an­­­rík­­­is­ráð­herra, og Jón Gnarr, þáver­andi borg­­­ar­­­stjóri, sam­­­þykkt um að ljúka vinnu við end­­­ur­­­skoðun á deiliskipu­lagi fyrir Reykja­vík­­­­­ur­flug­­­völl. Þegar því yrði lokið átti að til­­­kynna um lokun braut­­­ar­inn­­­ar. Í des­em­ber 2013 óskaði inn­­­an­­­rík­­­is­ráðu­­­neytið eftir því að und­ir­­­bún­­­ingur yrði hafin að lokun flug­­­braut­­­ar­inn­­­ar, með þeim fyr­ir­vara að ekk­ert yrði gert fyrr en að Rögn­u­­­nefndin svo­­­kall­aða myndi skila nið­­­ur­­­stöðum sín­­­um. Skýrslu henn­ar var skilað í fyrra og nið­­­ur­­­staða nefnd­­­ar­innar leysti ekki deilur um fram­­­tíð Reykja­vík­­­­­ur­flug­vallar á nokkurn hátt. Ákvörðun á grund­velli til­­­lagna hennar liggur enn ekki fyr­­­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None