Munu birta niðurstöður útboðsins fyrir 22. júní

Bjarni
Auglýsing

Hinn 25. maí 2016 kall­aði Seðla­banki Íslands eftir til­boðum um sölu á eignum skráðum í íslenskum krónum gegn greiðslu reiðu­fjár í erlendum gjald­eyri. Nánar til­tekið er um að ræða aflandskróna­eignir sem „upp­fylla skil­grein­ingu laga nr. 37/2016, svo­nefndar aflandskrón­ur“ eins og segir í til­kynn­ingu frá Seðla­bank­an­um. 

Aflandskróna­eig­endur gerðu í dag, á milli klukkan 10:00 og 14:00, til­boð um sölu á inn­lendum eignum sínum og kaup á erlendum gjald­eyri. Á næstu dögum verður farið yfir til­boð­in. 

Erlendum aflandskrónu­eig­endum gefst með útboð­inu færi á að losa um eign sína, sem hefur verið í fjár­magns­höft­um, eins og eignir ann­arra hér á landi, frá hruni.

Auglýsing

Í til­kynn­ingu frá Seðla­bank­anum var ekki greint frá því hver þátt­takan hefði ver­ið. Í öðrum óskyldum fréttum var frá því greint í dag, að rík­is­sjóður hefði greitt upp skulda­bréf sem gefin voru út árið 2011 og voru á gjald­daga í dag. Eft­ir­stöðvar skulda­bréf­anna námu 503 millj­ónum Banda­ríkja­dala eða um 62 millj­örðum króna. Bréfin verða greidd af gjald­eyr­is­inn­stæðum rík­is­sjóðs í Seðla­banka Íslands.

Seðla­bank­inn birta nið­ur­stöður útboðs­ins á heima­síðu Seðla­bank­ans eigi síðar en klukkan 9:00 mið­viku­dag­inn 22. júní 2016.

Aflandskrón­u­út­boðið var loka­hnykk­ur­inn í áætlun stjórn­valda um losun fjár­magns­hafta, en hún miðar að því að losa um höft­in, án þess að ógna stöð­ug­leika hag­kerf­is­ins eða geng­is­stöð­ug­leika. 

Aflandskrónur í eigu erlendra aðila nema um 300 millj­örðum króna. Full­­trúar banda­rísku sjóð­anna Eaton Vance Corp. og Autonomy Capi­­tal LP á íslandi, sem sagðir eru eiga um 30 pró­­sent af aflandskrón­un­um, telja lögin um losun fjár­­­magns­hafta ganga gegn stjórn­­­ar­­skrár­vörðum eigna­rétti sjóð­anna með „bóta­­skyld­um“ hætt­i, eins og fram hefur kom­ið. Þessu hafa Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri, alfarið hafn­að. 

Í grein í Wall Street Journal segir Bjarni að vog­un­ar­sjóð­irnir sem eigi aflandskrón­ur, eigi ekki að fá neinn for­gang, umfram almenn­ing hér á landi, þegar komi að því að losa um fjár­magns­höft­in. Horfa þurfi til almanna­hags­muna, þegar stigin séu skref í átt að los­un, en búast megi við því að ýmsir þeir sem tali fyrir hags­munum vog­un­ar­sjóð­anna láti í sér heyra, þegar þetta ferli sé í gangi. Það komi ekki á óvart, en breyti engu um aðgerðir stjórn­valda hér á land­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None