Ákvörðun kjararáðs kallar fram „nýja bylgju leiðréttinga“

Bæði formenn ASÍ og BSRB lýsa yfir óánægju með ákvörðun kjararáðs, sem hækkar laun ráðuneytisstjóra um ríflega 30 prósent.

1-mai_13896336488_o.jpg
Auglýsing

ASÍ og BSRB gagn­rýna harð­lega hækkun launa þeirra hópa sem falla und­ir­ kjara­ráð. Greint hefur verið frá því að laun ráðu­neyt­is­stjóra hafi um mán­aða­mótin hækkað um 36-37 pró­sent og laun ­skrif­stofu­stjóra um 28-35 pró­sent. Aðrir hópar sem heyra und­ir­ ráðið hækka um 7,15 pró­sent. Kjara­ráð vís­aði meðal ann­ar­s til þess að ráðu­neytum hefði fækkað og þau væru almennt ­stærri en áður.

Gylfi ­Arn­björns­son, for­seti ASÍ, segir að ef nýj­ustu hækk­an­irnar verð­i ekki dregnar til baka sé það ávísun á kröfu um leið­rétt­ing­ar frá öðrum hóp­um. „Ef Alþingi verður ekki kallað saman nú þegar þar sem for­sæt­is­ráð­herra setur fram frum­varp sem aft­ur­kalli þessa vit­leysu er alveg ljóst að kjara­dómur hef­ur ­kallað yfir okkur nýja bylgju leið­rétt­inga ein­stakra hópa!“ ­segir hann á Face­book.

Það verði ekki þannig að þeir tekju­hæstu fái sér­staka með­ferð. „Við ætl­umst til þess að þessir aðilar deili kjörum með­ al­menn­ingi í þessu landi. Ef ekki þá munum við deila kjörum með­ þeim.“

Auglýsing

Kjara­ráð ætli sér að leið­rétta „að­all­inn“ í land­inu áður en að­ferða­fræð­in, sem felst í nýju samn­inga­mód­eli og skrifað var undir með svoköll­uðu SALEK sam­komu­lagi, verði að veru­leika. „Þetta er frá­bært fram­lag Kjara­ráðs til þess vanda­sama verk­efnis sem aðilar vinnu­mark­aðar hafa verið að vinna að und­an­farna mán­uði að bæði móta og vinna að því að ná ­sam­stöðu um nýtt samn­inga­mód­el.“

BSR­B ­mót­mælti ákvörðun kjara­ráðs harð­lega og segir hana ganga gegn ramma­sam­komu­lagi aðila vinnu­mark­að­ar­ins. Með þess­ari ákvörð­un sé verið að draga út afmark­að­an hóp hálauna­fólks og hækka laun hans langt umfram aðra launa­hópa. ­Banda­lagið segir að ekki sé efast um að álag í starfi þeirra hafi auk­ist en slíkt eigi líka við um aðra hópa. „Við hjá BS­R­B ­gerum þá kröfu að allir lands­menn taki þátt í því að byggja upp nýtt vinnu­mark­aðs­kerfi og höfum unnið að því síð­ustu ár að breyta kerf­inu þannig að við losnum við enda­lausar leið­rétt­ingar starfs­stétta. Aðilar vinnu­mark­að­ar­ins ­gerðu með sér ramma­sam­komu­lag sem átti að koma í veg fyr­ir­ slíkt höfr­unga­hlaup á vinnu­mark­aði. Þessi hækkun launa ráðu­neyt­is­stjóra og skrif­stofu­stjóra hjá ráðu­neyt­unum er lang­t um­fram það sam­komu­lag og því alger­lega óásætt­an­leg,“ seg­ir Elín Björg Jóns­dótt­ir, for­maður BSR­B. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None