Allar líkur á að Theresa May verði næsti forsætisráðherra Bretlands

Michael Gove hafði ekki erindi sem erfiði þegar hann stakk vin sinn Boris Johnson í bakið og bauð sig fram til formanns Íhaldsflokksins. Tvær konur munu berjast um embættið, Theresa May og Andrea Leadsom.

Fátt virðist geta komið í veg fyrir að May flytjist inn í húsið að baki hennar.
Fátt virðist geta komið í veg fyrir að May flytjist inn í húsið að baki hennar.
Auglýsing

Ther­esa May verður að öllum lík­indum næsti for­maður Íhalds­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Hún hlaut 199 atkvæði í annarri umferð for­manns­kjörs­ins í flokkn­um, sem fór fram í dag. Næst á eftir henni kom Andrea Leadsom, sem hlaut 84 atkvæði, og í þriðja sæti varð Mich­ael Gove, sem fékk 46 atkvæði og verður ekki með í næstu umferð. 

Valið mun því standa á milli tveggja kvenna, May og Leadsom, þegar þriðja umferðin fer fram í næstu viku. Það virð­ist þó fátt geta komið í veg fyrir að May verði for­sæt­is­ráð­herra, stuðn­ingur við hana er ein­fald­lega svo mikið meiri. 

May sagði við blaða­menn fyrir utan þingið nú fyrir skömmu að hún væri mjög ánægð með góða kosn­ingu og mik­inn stuðn­ing. Þetta sýndi að Íhalds­flokk­ur­inn geti verið sam­ein­að­ur, og undir hennar for­ystu myndi flokk­ur­inn gera það á ný. 

Auglýsing

Mich­ael Gove ríður ekki feitum hesti frá for­manns­kjör­inu, sem hann til­kynnti öllum að óvörum að hann ætl­aði að taka þátt í skömmu áður en fram­boðs­frest­ur­inn rann út í síð­ustu viku. Með því líta margir svo á að hann hafi svikið vin sinn og bar­áttu­bróður Boris John­son, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóra London, sem hafði ætlað sér í for­manns­fram­boð með hjálp Gove. John­­son lýsti í vik­unni for­m­­lega yfir stuðn­­ingi við Andreu Leadsom, og sagði hana hafa allt sem til þyrfti til að leiða Bret­land. Talið er að stuðn­­ingur hans hafi hjálpað henni mikið og fylkt stuðn­­ings­­mönnum þess að yfir­­­gefa ESB að baki henn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None