Meniga hlaut verðlaun á World Summit Award fyrir bestu tæknilausn

Georg Lúðvíksson, forstjóri Meniga, tekur á móti verðlaununum í Singapúr.
Georg Lúðvíksson, forstjóri Meniga, tekur á móti verðlaununum í Singapúr.
Auglýsing

Íslenska hug­bún­að­ar­fyr­ir­tækið Meniga hlaut hin virtu World Summit Award fyrir bestu tækni­lausn­ina í flokki við­skipta og versl­una á ráð­stefnu sam­tak­anna í Singapúr í byrjun júlí. 

World Summit Award er alþjóð­leg ráð­stefna sem er haldin á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna. Mark­mið þeirra er að verð­launa fyr­ir­tæki sem þykja skara fram úr í þróun á tækni­lausnum, sem hafa jákvæð sam­fé­lags­leg áhrif og hjálpa fólki um allan heim. Yfir 400 til­efn­ingar frá 86 löndum bár­ust fyrir verð­launin í ár. 

Georg Lúð­víks­son, for­stjóri og einn stofn­enda Meniga, tók við verð­laun­unum í Singapúr þann 1. júlí síð­ast­lið­inn. 

Auglýsing

Til­kynnt var um það í lok síð­asta árs að fyr­ir­tækið myndi hljóta verð­laun­in. 

Meniga þróar og selur fjár­­­mála- og mark­aðs­­lausnir og er í við­­skiptum við yfir 25 fjár­­­mála­­stofn­­anir í 16 lönd­­um. Fyr­ir­tækið er með um 100 starfs­­menn í Reykja­vík, Stokk­hólmi og London og hjálpar um 25 millj­­ónum manna um allan heim nota lausnir Meniga til að skilja og skipu­­leggja fjár­­­mál sín. Á Íslandi eru um 50 þús­und not­endur að lausnum Meniga, eða tæp­­lega þriðj­ungur allra heim­ila. Notkun Men­inga er ókeypis fyrir not­end­­ur.

Jóhann Pétur Malmquist, pró­­fessor í tölv­un­­ar­fræð­i við Háskóla Íslands er sér­­fræð­ingur hjá  World Summit Award fyrir Ísland og velur verk­efni frá Íslandi. Hann segir það mikla við­­ur­­kenn­ingu fyrir íslenska frum­­kvöðla­­starf­­semi í hug­­bún­­að­­ar­iðn­­aði að Meniga hljóti verð­­laun­in, enda var fyr­ir­tækið að keppa við lausnir frá 178 lönd­­um. "Minn draumur er að fleiri íslensk fyr­ir­tæki nái svona langt og að við getum haldið áfram að skapa fleiri vel­­launuð störf í hug­­bún­­að­­ar­iðn­­aði á Íslandi. Það gleður mig mikið þegar nem­endum mínum farn­­ast vel. Það er sér­­stak­­lega verð­­mætt þegar íslenskt hug­vit er notað til verð­­mæta­­sköp­unar og skilar erlendum tekjum sem er und­ir­­staða bættra lífs­kjara á Ísland­i.“

Kjarn­inn var til­­­nefndur World Summit Award verð­­launa Sam­ein­uðu þjóð­anna í flokknum e-Media&news, eða í staf­rænna miðla og frétta, árið 2014. Þá voru alls 454 verk­efni til­­­nefnd í átta flokk­­um. Kjarn­inn var eitt af tveimur íslenskum fyr­ir­tækjum sem hlaut til­­­nefn­ingu. Hitt var Locatify, sem var til­­­nefnt í flokknum e-Tourism&Cult­ure, eða staf­rænnar ferða­­þjón­­ustu og menn­ing­­ar. Hvorki Kjarn­inn né Locatify hlaut hins vegar verð­­laun­in.

Tölvu­­leikur CCP, EVE Online, vann til verð­­launa í sam­keppn­inni árið 2013 þegar hann varð  í fyrsta sæti í flokki afþrey­ingar og leikja. EVE Online og Meniga eru einu íslensku vör­­urnar sem hafa unnið til verð­laun­anna. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None