Íslensk tónlist færð í nútímann með nýju útgáfufyrirtæki

Nýtt útgáfufyrirtæki stefnir að 10 nýjum útgáfum á íslenskri tónlist á næsta ári.

Ólafur Arnalds í miklu stuði ásamt Janus Rasmussen sem saman mynda elektródúettinn Kiasmos.
Ólafur Arnalds í miklu stuði ásamt Janus Rasmussen sem saman mynda elektródúettinn Kiasmos.
Auglýsing

Tón­list­ar­menn­irnir Ólafur Arn­alds og Sölvi Blön­dal fara fyrir hópi tón­list­ar­fólks og fjár­festa sem standa að stofnun nýs tón­list­ar­út­gáfu­fyr­ir­tæk­is. Með nýja útgáfu­fyr­ir­tæk­inu á að nútíma­væða íslenska tón­list­ar­út­gáfu með auk­inni staf­rænni útgáfu og auka aðgengi að eldra íslensku efni á ver­ald­ar­vefn­um. Stefnt er á 10 nýjar útgáfur á næsta ári.

Í sam­tali við Kjarn­ann segir Ólafur að nýja fyr­ir­tæk­inu, sem enn hefur ekki fengið nafn, verði stjórnað af tón­list­ar­mönnum og að að því komi aðeins fólk sem sé tón­list­ar­fólk eða hafi ástríðu fyrir tón­list. Bæði Ólafur og Sölvi sitja í stjórn fyr­ir­tæk­is­ins en meðal ann­arra sem koma að stofnun þess eru Reynir Harð­ar­son, fram­kvæmda­stjóri CCP, Sig­ur­jón Sig­hvats­son kvik­mynda­gerð­ar­maður og fjár­fest­arnir Hen­rik Bier­ing og Jón Dið­rik Jóns­son, sem er meiri­hluta­eig­andi í Senu.

Ólafur segir að umræða um stofnun nýs útgáfu­fyr­ir­tækis á Íslandi hafi staðið lengi en hjólin hafi ekki farið að snú­ast fyrr en í byrjun þessa árs. „Þetta er góð hug­mynd fyrir okkur sem stöndum að þessu og tón­list­ar­fólk­ið,“ segir Ólaf­ur. Hug­myndin sé að nútíma­væða íslenska tón­list­ar­út­gáfu; færa hana enn frekar í staf­rænt form.

Auglýsing

Tón­list­ar­streym­isveitur á borð við Spotify og iTu­nes hafa und­an­farin miss­eri rutt sér til rúms sem stærsti „selj­andi“ tón­listar í heim­in­um. Tug þús­und Íslend­ingar eru með áskrift að Spoti­fy, þar sem hægt er að sækja tón­list­ina lög­lega með því að greiða mán­að­ar­legt gjald. Ólafur segir að það sé engin ástæða fyrir því að íslenskir tón­list­ar­menn eigi ekki að fá borgað fyrir staf­ræna hlustun líka.

Ónefnda útgáfu­fyr­ir­tækið hef­ur, til þess að stuðla að mark­miði sínu, eign­ast allan tón­list­ar­rekstur Senu og um leið alla safn­skrá og eldri útgáfur fyr­ir­tæks­ins. Þar eru allt að sjö­tíu ára gamlar útgáfur sem Ólafur segir að gaman verði að dreifa lög­lega á vefn­um.

„Mark­miðið er að taka cata­logu­e-inn og gera hann meira áber­andi staf­ræna heim­inum og gera íslenska tón­list aðgengi­legri. Það hefur eng­inn farið í þessa her­ferð að búa til staf­rænt íslenskt tón­list­ar­um­hverf­i,“ segir Ólaf­ur. Með því að kom­ast yfir útgefið efni í eigu Senu segir Ólafur að hægt sé að reka útgáfu­fyr­ir­tækið á nútíma­legri hátt; Þeim hafi fund­ist að það þyrfti kannski að koma nýtt blóð í rekst­ur­inn til að nútíma­væða útgáf­una.

Þó mega íslenskir tón­list­ar­menn ekki gef­ast upp á geisla­disk­un­um, og sér­stak­lega ekki vinyl­plöt­un­um. Nýja útgáfu­fyr­ir­tækið ætlar einnig að gefa út efn­is­legar plöt­ur, ef svo má að orði kom­ast. Ólafur bendir hins vegar á að mark­að­ur­inn fyrir slíka útgáfu sé að minnka og að hann muni minnka enn frek­ar. Útgáfa á vinyl hefur þó fengið nýja náð meðal tón­list­arunn­enda og hefur það auk­ist und­an­farin ár að lista­menn gefi tón­list sína út á vinyl. Ólafur segir einnig hugs­an­legt að nýja útgáfu­fyr­ir­tækið ráð­ist í end­ur­út­gáfu á eldra íslensku efni, jafn­vel því sem aldrei hefur komið út á vinyl.

Fyr­ir­tækið og hug­myndin verður kynnt fyrir tón­list­ar­fólki og blaða­mönnum á Húrra í dag klukkan 13.

Ólafur Arn­alds hefur getið sér gott orð sem solo-lista­mað­ur. Hann hefur gefið út þrjár breið­skífur síðan 2007 auk þess að hann hefur átt í sam­starfi við hina ýmsu lista­menn. Þekktasta sam­starfið er hugs­an­lega til­raunatekknóbandið Kiasmos sem Ólafur rekur með Janus Rasmus­sen.

Sölvi Blön­dal er oft kenndur við Quarashi enda var hann einn stofn­enda hljóm­sveit­ar­innar árið 1996 og er enn for­sprakki sveit­ar­innar í end­ur­kom­unni sem hófst í ár. Ný plata er í smíðum hjá Quarashi og nú þegar eru þeir búnir að gefa út nýtt lag:



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None