Sjálfstæðismenn sækja í sig veðrið

Kosningaspá sýnir fylgi við Sjálfstæðisflokkinn aukast á kostnað Pírata.

Bjarni Benediktsson er formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Benediktsson er formaður Sjálfstæðisflokksins.
Auglýsing

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn bætir við sig mestu fylgi í nýrri kosn­inga­spá sem gerð var fimmtu­dag­inn 28. júní og er nú með 25,4 pró­sent fylgi. Píratar mæl­ast sem fyrr með mest fylgi og eru með 25,6 pró­sent. Ekki er mark­tækur munur á fylgi þess­ara fram­boða í nýj­ustu kosn­inga­spánn­i.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, Sam­fylk­ingin og Við­reisn mæl­ast í þetta sinn öll með 8,7 pró­sent stuðn­ing í kosn­inga­spánni. Það er tölu­vert minna en Vinstri græn sem myndu hljóta 16 pró­sent atkvæða á lands­vísu ef gengið yrði til kosn­inga nú.

Auglýsing

Enn hefur ekki verið ákveðið hvenær kjör­dagur verður í fyr­ir­hug­uðum alþing­is­kosn­ingum sem ráða­menn hafa sagt að fari fram í haust. Bæði Sig­urður Ingi Jóhanns­son, for­sæt­is­ráð­herra og vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafa sagt að kosn­ing­arnar muni fara fram.

Björt fram­tíð mælist enn minnst þeirra fram­boða sem eiga nú þegar full­trúa á Alþingi og er með 3,9 pró­sent í kosn­inga­spánni. Ætla má að fram­boð þurfi um það bil fimm pró­sent fylgi á lands­vísu í alþing­is­kosn­ingum til að ná kjöri. Önnur fram­boð eru sam­an­lagt með stuðn­ing þrjú pró­sent kosn­inga­bærra Íslend­inga.

Nýjasta könn­unin sem vegin er í kosn­inga­spár­lík­an­inu er könnun Gallup sem birt­ist í gær. Hún hlýtur meira en helm­ingsvægi í nýj­ustu kosn­inga­spánni og helg­ast það einkum af tveimur ástæð­um; Gallup­könn­unin er gerð yfir langt tíma­bil, frá 30. júní til 29. júlí og var úrtaks­stærðin mun stærri en í örðum könn­unum sem liggja fyrir um fylgi fram­boða til Alþing­is.

Um nýj­­ustu kosn­­inga­­spána

Nýjasta kosn­­inga­­spáin var gerð 28. júlí og er byggð á þremur nýj­­ustu könn­unum sem gerðar hafa verið á fylgi fram­­boð­anna sem hyggj­­ast bjóða fram í kosn­­ing­unum í haust. Kann­an­­irnar sem liggja til grund­vallar kosn­­inga­­spánni eru eft­ir­far­and­i:

  • Þjóð­­­ar­púls Gallup 30. júní til 29. júlí (vægi 52,0%)
  • Skoð­ana­könnun MMR 15. júlí til 22. júlí (vægi 28,0%)
  • Skoð­ana­könnun MMR 27. júní til 4. júlí (vægi 20,0%)

Kosn­­­­­­­inga­­­­­­­spálíkan Bald­­­­­­­urs Héð­ins­­­­­­­sonar miðar að því að setja upp­­­­­­­lýs­ing­­­­­­­arnar sem skoð­ana­kann­­­­­­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­­­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­­­­­inga. Kjarn­inn birti Kosn­­­­­­­inga­­­­­­­spá Bald­­­­­­­urs fyrir sveit­­­­­­­ar­­­­­­­stjórn­­­­­­­­­­­­­ar­­­­­­­kosn­­­­­­­ing­­­­­­­arnar og reynd­ist sú til­­­­­­­raun vel. Á vefnum kosn­­­­­­­inga­­­­­­­spá.is má lesa nið­­­­­­­ur­­­­­­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­­­­­­vik kann­ana miðað við kosn­­­­­­inga­úr­slit­in.

Áreið­an­­­­­­­leiki könn­un­­­­­­­ar­að­ila er reikn­aður út frá sög­u­­­­­­­legum skoð­ana­könn­unum og kosn­­­­­­­inga­úr­slit­­­­­­­um. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könn­unin var fram­­­­­­­kvæmd og svo hversu margir svara í könn­un­un­­­­­­­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None