Trump kallar Clinton djöful og segist hræddur um kosningasvindl

Donald Trump
Auglýsing

Don­ald Trump, for­seta­efni Repúblikana­flokks­ins, segir að það sé mögu­leiki á því að kosn­inga­svindl verði stundað í for­seta­kosn­ing­unum í Banda­ríkj­unum í nóv­em­ber. Hann seg­ist ótt­ast að svo verði og hvatti repúblik­ana til að vera vel á verði, „ann­ars verður þetta tekið frá okk­ur.“ 

Trump sagði þetta á kosn­inga­fundi í Col­umbus í Ohio og end­ur­tók þetta svo í við­tali á Fox News í gær­kvöldi. Roger Sto­ne, ráð­gjafi Trump til langs tíma, ýtti einnig undir þetta. „Ég held að við höfum víð­tækt kosn­inga­svindl, en það fyrsta sem Trump þarf að gera er að byrja að tala um það stans­laust. Hann þarf að segja til dæm­is: Ég leiði í Flór­ída, skoð­ana­kann­an­irnar sýna það. Ef ég tapa í Flór­ída, þá vitum við að það er kosn­inga­svindl í gang­i.“ 

Í gær­kvöldi var Trump svo kom­inn á kosn­inga­fund í Penn­syl­vaníu þar sem hann kall­aði keppi­naut sinn um for­seta­stól­inn, Hill­ary Clint­on, djöf­ul­inn. Hann hefur und­an­farið sagt að Bernie Sand­ers, sem laut í lægra haldi fyrir Clinton hjá demókröt­um, hafi gert sam­komu­lag við djöf­ul­inn með því að styðja hana. Í gær fór hann í fyrsta sinn lengra og sagði beint út: „Hún er djöf­ull­inn.“ 

Auglýsing

Trump hefur hins vegar alfarið forð­ast að svara mik­illi gagn­rýni á ummæli hans um hjón sem héldu ræðu á flokks­þingi demókrata í síð­ustu viku og lýstu þar dauða sonar síns, sem var her­mað­ur. Hann hét Humayun Khan og var 27 ára gam­all banda­rískur múslimi sem fórn­aði lífi sínu í Afganistan fyrir tólf árum síð­an. Faðir hans, Khizr Khan, gagn­rýndi Trump harð­lega í ræð­unni, og sagði meðal ann­ars að ef Trump hefði fengið að ráða hefði fjöl­skyldan aldrei komið til Banda­ríkj­anna. Trump segði niðr­andi hluti um múslima, um kon­ur, um minni­hluta­hópa. Hann spurði hvort Trump hefði yfir­höfuð lesið stjórn­ar­skrá Banda­ríkj­anna. 

Fyrstu við­brögð Trump voru að gagn­rýna að Khizr Khan hefði einn flutt ræð­una, en kona hans Ghazala hafi staðið við hlið hans. „Hún hafði ekk­ert að segja. Hún lík­lega, kannski mátti hún ekki segja neitt. Seg þú mér.“ Ghazala kom í við­tal degi síðar og greindi frá því að hún hafi ein­fald­lega ekki treyst sér til að tala um son sinn á þessum vett­vangi, þar sem enn þann dag í dag bresti hún í grát við að sjá myndir af hon­um. 

Trump sagði einnig að hann hefði fært fórnir svip­aðar þeim sem hjónin og sonur þeirra hefðu fært. 

Trump hefur verið harð­lega gagn­rýndur bæði af sam­flokks­mönnum og póli­tískum and­stæð­ingum fyrir fram­komu sína í garð hjón­anna. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None