Verðtryggingin ekki afnumin af sitjandi ríkisstjórn

Bjarni Benediktsson segir að verðtryggingin verði ekki afnumin af sitjandi ríkisstjórn. Frumvarp sem á að draga úr vægi verðtryggingar er í undirbúningi.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Auglýsing

Frum­varp sem lagt verður fyrir Alþingi á að draga úr vægi verð­trygg­ingar í íslensku efna­hags­lífi. Þetta var haft eftir Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.  Verð­trygg­ing verður ekki afnumin af þeirri rík­is­stjórn sem situr nú. Bjarni seg­ist aldrei hafa ætlað að fara í „ein­falt afnám verð­trygg­ing­ar“ eins og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sagði á dög­unum að væri ein for­senda þess að kosið yrði í haust.

Frum­varp um breyt­ingar á hús­næð­is- og lána­málum verður lagt fyrir Alþingi „í tengslum við“ það þegar þing kemur saman á ný seinni­part­inn í ágúst, að sögn Bjarna. Ekki hafi verið ákveðið hvenær frum­varp­inu verði deilt á Alþingi. Í þessu frum­varpi er ætl­unin að minnka vægi verð­trygg­ingar til þess að auð­velda fólki að greiða niður höf­uð­stól hús­næð­is­lána og fjár­magna ný lán.

„Að­gerðir í hús­næð­is­málum og lána­málum sem tengj­ast verð­trygg­ingu eru mál sem við höfum verið að skoða,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra í við­tali á tröppum Stjórn­ar­ráðs­ins eftir rík­is­stjórn­ar­fund í morg­unn. Var það fyrsti rík­is­stjórn­ar­fund­ur­inn sem hald­inn hefur verið í mán­uð. 

Auglýsing

„Það er ekki hægt að segja að við séum að fara í ein­falt afnám verð­trygg­ing­ar. Það get ég ekki sagt. Ég hef aldrei talað fyrir því að á íslandi verði hægt, með einu penna­striki, að afnema verð­trygg­ing­u,“ sagði Bjarni.

Greint var frá því í jan­úar að unnið hafi verið að frum­varpi um breyt­ingar á verð­tryggðum lánum í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. Þær breyt­ingar áttu að þrengja að 40 ára jafn­greiðslu­lánum og fara með þau niður í 25 ár.

Í útvarps­við­tali á dög­unum sagði Sig­mundur Davíð að þegar hann hafi sagt af sér sem for­sæt­is­ráð­herra hafi verið búið að und­ir­búa kynn­ingu á afnámi verð­trygg­ing­ar­inn­ar. Kynna hefði átt „mjög flott plan“ í Hörpu í sept­em­ber á þessu ári. Hann segir að nú sé kom­inn upp sú staða að ekk­ert standi í vegi fyrir því að „klára þetta verð­trygg­ing­ar­mál“. 

„Fyrri part árs 2014 gerði rík­­is­­stjórnin sam­­þykkt um með hvaða hætti yrði unnið að afnámi verð­­trygg­ing­­ar...Fjár­­­mála­ráðu­­neytið átti þar að klára ákveðin verk­efni, það dróst nú langt fram yfir þann tíma sem rík­­is­­stjórnin hafði sam­­þykkt, en það voru rök fyrir því. Þau rök voru að það væri eðli­­legt að setja þetta í sam­hengi við aðra stóra hluti sem verið væri að vinna að, eins og hafta­­mál og hús­næð­is­­mál,“ sagði Sig­­mundur Dav­­íð. 

Hann sagði Sjálf­­stæð­is­­flokk­inn og Fram­­sókn­­ar­­flokk­inn ekki hafa verið sam­­mála um verð­­trygg­ing­­ar­­málin og tók undir það sem Silja Dögg Gunn­­ar­s­dótt­ir, þing­­maður fram­­sókn­­ar, sagði um síð­­­ustu helgi, að til greina komi að Fram­­sókn­­ar­­flokk­­ur­inn leggi fram frum­varp um afnám verð­­trygg­ing­­ar­innar fram hjá Sjálf­­stæð­is­­flokknum ef „þetta gangi ekki nógu hratt hjá rík­­is­­stjórn­­inn­i.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None