Hreiðar Már segir Sérstakan saksóknara hafa leynt mikilvægum sönnunargögnum

Fyrrverandi bankastjóri Kaupþings fer fram á lögreglurannsókn á starfsmönnum Sérstaks saksóknara. Hann telur embættið hafa leynt mikilvægum sönnunargögnum sem hefðu hugsanlega geta leitt til sýknu hans í tveimur dómsmálum.

Hreiðar Már Sigurðsson var bankastjóri Kaupþings banka á árunum 2003 til 2008.
Hreiðar Már Sigurðsson var bankastjóri Kaupþings banka á árunum 2003 til 2008.
Auglýsing

Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, hefur farið fram á að lög­regla rann­saki starfs­hætti starfs­manna emb­ættis Sér­staks sak­sókn­ara. Hann segir starfs­menn­ina hafa leynt mik­il­vægum sönn­un­ar­gögnum í saka­málum gegn sér sem hefðu hugs­an­lega geta leitt til sýknu hans í þeim málum sem hann hefur verið dæmdur í. Frétta­stofa RÚV greindi frá þessu í kvöld.

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur sýkn­aði Hreiðar Má, Sig­urð Ein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­mann Kaup­þings, og Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi banka­stjóra Kaup­þings í Lúx­em­borg, í svoköll­uðu CLN-­máli í jan­úar þar sem þre­menn­ing­unum var gefið að sök að hafa við­haft flókin við­skipti sem voru til þess fallin að sýna bank­ann sterk­ari en hann raun­veru­lega var. Þá hafði hér­aðs­dómur kveðið upp úrskurð um að sak­born­ing­arnir ættu rétt á aðgengi að öllum þeim gögnum sem emb­ætti Sér­staks sak­sókn­ara hefði aflað úr tölvu­kerfi Kaup­þings. Hreiðar Már telur að aðgengi að öllum gögn­unum hafi ráðið úrslitum um að hann hafi verið sýkn­aður í mál­inu.

Hreiðar Már er, ásamt þeim Magn­úsi Guð­munds­syni og Lárusi Weld­ing, sá ein­stak­lingur sem Sér­stakur sak­sókn­ari ákærði oft­ast eða alls fjórum sinn­um. Hreiðar Már hefur tvisvar verið sak­felldur í Hér­aðs­dómi í málum sem Sér­stakur sak­sókn­ari hafði til rann­sókn­ar; fyrst í Al Than­i-­mál­inu í des­em­ber árið 2013, sem Hæsti­réttur stað­festi svo, og svo í Marp­le-­mál­inu í októ­ber í fyrra.

Auglýsing

Í CLN-­mál­inu voru Hreiðar Már og Sig­urður Ein­ars­son ákærðir fyrir stór­felld umboðs­svik með því að lána fjórum eign­ar­halds­fé­lögum 260 millj­ónir evra. Félögin fjögur laun­uðu féð áfram til tveggja ann­arra félaga sem not­uðu það til að kaupa láns­hæf­istengd skulda­bréf (Credit Lin­ked Not­es, eða CLN) sem tengd voru skulda­trygg­ing­ar­á­lagi Kaup­þings.

Þegar þýski bank­inn Deutsche Bank hóf veð­köll vegna máls­ins fengu síð­ari félögin tvö 260 millj­ónir evra til við­bótar lán­uð. Sam­tals nemur láns­upp­hæðin 510 millj­ónum evra eða um 70 millj­örðum króna á gengi dags­ins í dag. Í ákæru sér­staks sak­sókn­ara kemur fram að talið sé að útlánin séu að öllu leyti töp­uð. Þar segir einnig að menn­irnir tveir hafa valdið Kaup­þingi „stór­felldu tjóni“ með hátt­semi sinni. Sem fyrr segir voru banka­menn­irnir þrír sýkn­aðir af þessum ákær­um.

Hreiðar Már seg­ist hafa ítrekað gagn­rýnt Sér­stakan sak­sókn­ara fyrir að hafa ekki veitt sak­born­ingum fullan aðgang að þeim gögnum sem sak­sókn­ara­emb­ættið hafði undir hönd­um, eftir bæði hús­leit í Kaup­þingi og leit í tölvu­kerfi hins fallna banka. Gögnin sem sak­born­ingar hefðu fengið að sjá voru aðeins þau gögn sem emb­ættið setti fram til rök­stuðn­ings fyrir dómi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None