77 milljarðar horfnir á þremur mánuðum

Virði hlutabréfa sem skráð eru í kauphöll Íslands dróst saman um 77 milljarða króna á þremur mánuðum. Bréf Icelandair Group hafa lækkað mest, um 41 milljarð króna á tímabilinu.

Kauphöll
Auglýsing

Mark­aðsvirði félaga sem skráð eru með hluta­bréf í kaup­höll Íslands, bæði á aðal­­­markað og First North, dróst saman um 77 millj­arðar króna frá lokum apr­íl­mán­aðar og fram að síð­ustu mán­að­ar­mót­um. Það þýðir að 7,4 pró­sent af mark­aðsvirði félag­anna hefur horfið á þremur mán­uðum og heild­ar­virði þeirra farið úr 1.043 millj­örðum króna í 966 millj­arða króna. Mark­aðsvirði Icelandair Group hefur fallið mest á tíma­bil­inu, eða um 41 millj­arð króna. Þetta kemur fram í við­skipta­yf­ir­litum fyrir Kaup­höll Íslands sem birt eru mán­að­ar­lega.

Mikil vöxtur á und­an­förnum árum

Íslenskur hluta­bréfa­mark­aður hefur vaxið hratt á und­an­förnum árum. Í byrjun árs 2013 var heild­ar­mark­aðsvirði þeirra félaga sem skráð voru á hann 436 millj­arðar króna. Þremur árum síð­ar, í lok árs 2015, var virði þeirra orðið 1.049 millj­arðar króna. Skráðum félögum á mark­aði hefur fjölgað síðan þá og útskýrist virð­is­aukn­ingin að ein­hverjum leyti vegna þeirra. Alls eru nú 20 félög skráð, þar af 16 á aðal­mark­aði. Þrjú ný félög, fast­eigna­fé­lögin Eik og Reitir og fjar­skipt­ar­is­inn Sím­inn, voru skráð á markað í fyrra.

En nýskrán­ingar útskýra alls ekki alla virð­is­aukn­ingu. Úrvals­vísi­tala Kaup­hall­ar­inn­ar, sem er sam­sett af þeim átta félögum sem hafa mestan selj­an­leika innan kaup­hall­ar­innar hverju sinni, hefur hækkað mjög á und­an­förnum árum. Frá byrjun árs 2013 og til loka síð­asta árs hækk­aði hún um 73 pró­sent. Á árinu 2015 einu saman fór hún upp um 49 pró­sent. Það sem af er ári hefur hins vegar heldur sígið á ógæfu­hlið­ina. Frá lokum apr­í­mán­að­ar, þegar hún náði sínum hæstu eft­ir­hruns­hæð­um, hefur hún lækkað um tólf pró­sent.

Auglýsing

Bréf Icelandair lækkað um 23 pró­sent

Það félag í kaup­höll­inni sem hefur lækkað mest á und­an­förnum mán­uðum er Icelandair Group. Gengi bréfa félags­ins var 36 krónur á hlut í byrjun maí en er nú 27,75 krón­ur. Bréfin hafa því lækkað um 23 pró­sent í verði á þremur mán­uð­um.

Í byrjun maí var mark­aðsvirði Icelandiar Group um 179 millj­arðar króna. Í dag er það um 138 millj­arðar króna. Því hafa um 41 millj­arður króna af mark­aðsvirði félags­ins horfið á tíma­bil­inu. Alls má rekja rúm­lega helm­ing alls þess virð­is­taps sem orðið hefur hjá skráðum félögum í íslensku kaup­höll­inni á síð­ustu þremur mán­uðum til Icelanda­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None