365 miðlar
Auglýsing

Vikt­oría Her­manns­dóttir hefur sagt upp störfum hjá 365. Hún hefur verið annar rit­stjóra helg­ar­blaðs Frétta­blaðs­ins í tæpt ár ásamt Ólöfu Skafta­dótt­ur. Vikt­oría er annar stjórn­andi Frétta­blaðs­ins sem segir upp störfum á skömmu tíma en Fanney Birna Jóns­dótt­ir, aðstoð­ar­rit­stjóri Frétta­blaðs­ins, hefur einnig gert það. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans eru fleiri starfs­menn frétta­stofu 365, sem nær yfir Frétta­blað­ið, Stöð 2 og Vísi, að íhuga upp­sögn. 

Ástæðan er óánægja með störf Krist­ínar Þor­steins­dótt­ur, aðal­rit­stjóra frétta­stofu 365, og yfir­stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins. Sú óánægja náði nýjum hæðum eftir að Pjetri Sig­urðs­syni, yfir­manni ljós­mynda­deildar 365, var sagt upp störfum í síð­ustu viku, en Pjetur gafði kvart­að undan Krist­ínu við fyrr­ver­andi mannauðs­­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins vegna meints ein­elt­­is. Mannauðs­­stjór­inn, Unnur María Birg­is­dótt­ir, setti af stað for­m­­lega athugun á ásök­unum Pjet­­urs en þegar Kristín komst að því að slík athugun stæði yfir var hún stöðvuð af yfir­­­stjórn 365 og Pjetur sendur í leyfi. Unnur María hætti störfum í byrjun júní, eftir að hafa starfað hjá fyr­ir­tæk­inu í hálft ár. 

Viktoría Hermannsdóttir.Í kjöl­far upp­sagnar Pjet­urs voru starfs­­menn á rit­­stjórn 365  boð­aðir á fund á föst­u­dag með Krist­ínu þar sem hún fór yfir málið frá sínum bæj­­­ar­dyr­­um. Sam­­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans hélt hún því þar fram að ástæðan fyrir sam­­skiptarörð­u­­leik­unum við Pjetur væru hans meg­in, ekki hennar og ásak­aði hann um að vera í her­­ferð gegn sér. Þessi mál­­flutn­ingur fór afar illa í starfs­­menn, sér­­stak­­lega þar sem hann fékk ekki tæki­­færi til að segja sína hlið á mál­inu. Var í kjöl­farið rætt um að leggja niður störf og koma í veg fyrir að Frétta­­blað­ið, sem er stærsta dag­­blað lands­ins, kæmi út á laug­­ar­dag. 

Auglýsing

Þess í stað ákváðu starfs­­menn­irnir að senda frá sér yfir­­lýs­ingu vegna atburð­anna. Hún var send út á þriðju­dag og sam­­kvæmt upp­­lýs­ingum Kjarn­ans stóðu nær allir starfs­­menn Vísis og Frétta­­blaðs­ins sem ekki hafa fjöl­­skyld­u­­tengsl við aðal­­­rit­­stjór­ann og náð­ist í, að yfir­­lýs­ing­unni. Í yfir­­lýs­ing­unni er upp­­­sögn Pjet­­urs sögð óverð­skuld­uð. Þar eru einnig hörmuð „óá­­­­­sætt­an­­­leg vinn­u­brögð aðal­­­­­­­rit­­­­stjóra og yfir­­­­­­­stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins í aðdrag­anda upp­­­­­­­sagnar Pjet­­­­urs og við kynn­ingu á henni til sam­­­­starfs­­­­manna hans.“ Yfir­­lýs­ingin var send til allra fjöl­miðla, Ing­i­­bjargar Pálma­dóttur stjórn­­­­­ar­­­for­­­manns og aðal­­eig­anda 365, Sæv­­ars Freys Þrá­ins­­sonar for­­­stjóra 365 og Krist­ín­­ar, aðal­­­­­rit­­­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins. Jakob Bjarnar Grét­ars­son, frétta­maður á Vísi, deildi frétt Kjarn­ans um yfir­lýs­ing­una á Face­book í gær og sagði í ummælum við hana að málið snú­ist „ekki bara um Pjet­ur, með fullri virð­ingu fyrir þeim ágæta vini mín­um, frekar að hans mál sé kornið sem fyllir mæl­inn. Blasir það ekki við?“

Starfs­menn voru boð­aðir á fund með stjórn­endum 365 í dag klukkan 13 til að fara yfir stöð­una. Á þeim fundi tóku Krist­ín, aðal­rit­stjóri, og Ingi­björg, stjórn­ar­for­mað­ur, m.a. báðar til máls. Sam­kvæmt við­mæl­endum Kjarn­ans sem voru á fund­inum var mikil óánægja með það á meðal starfs­manna að Kristín hefði ekki beðist afsök­unar á fram­ferði sínu gagn­vart starfs­fólki og að þar hafi ekki verið kynntar neinar beinar aðgerðir til að taka á þeim vanda sem uppi sé innan fyr­ir­tæk­is­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None