Landsbankinn hagnaðist um 11,3 milljarða á sex mánuðum

Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans.
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans.
Auglýsing

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 11,3 millj­arða króna á fyrri hluta árs­ins 2016. Það er rúmum millj­arði króna minna en hagn­aður hans var á sama tíma­bili í fyrra. Helsta ástæða þess að hagn­aður nú er minni felst í minni hagn­aði af hluta­bréf­um. Aðrar rekstr­ar­tekjur Lands­bank­ans, sem ná meðal ann­ars yfir hagnað af hluta­bréf­um, voru 7,3 millj­arðar króna á fyrri hluta árs­ins 2015 en 4,4 millj­arðar króna á sama tíma­bili í ár. Arð­semi eigin fjár á árs­grund­velli lækkar einnig umtals­vert, og fer úr 10,4 pró­sent í 8,6 pró­sent. Rekstr­ar­kostn­aður hækkar á milli ára um 1,6 pró­sent. Öll sú hækkun og meira til er vegna auk­ins launa­kostn­að­ar. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Lands­bank­anum vegna hálfs­árs­upp­gjörs hans. 

Eigið fé tæp­lega 250 millj­arðar

Þar segir einnig að heild­ar­eignir bank­ans hafi dreg­ist saman um rúm fimm pró­sent síð­ast­liðið ár og eru nú 1.110 millj­arðar króna. Þetta er vegna þess að í apríl hafi verið ákveðið að greiða hlut­höfum bank­ans 28,5 millj­arða króna í arð. Íslenska ríkið á Lands­bank­ann að mestu en starfs­menn hans eiga einnig lít­inn hlut. Eigið fé Lands­bank­ans í lok júní síð­ast­lið­ins var 247,3 millj­arðar króna.

Hreinar vaxta­tekjur bank­ans voru 17,6 millj­arðar króna og hækk­uðu um níu pró­sent á milli tíma­bila. Hreinar þjón­ustu­tekjur námu 3,9 millj­örðum króna og hækk­uðu um 14,7 pró­sent frá sama tíma­bili árið áður. 

Auglýsing

Stein­þór Páls­son, banka­stjóri Lands­bank­ans, segir að bank­inn mælist nú með hærri mark­aðs­hlut­deild á ein­stak­lings­mark­aði en nokkru sinni áður, 37,6 pró­sent. „Mark­aðs­hlut­deild á fyr­ir­tækja­mark­aði hefur einnig auk­ist og nið­ur­stöður úr þjón­ustukönn­unum sýna að ein­stak­lingar jafnt sem fyr­ir­tæki kunna vel að meta þjón­ustu bank­ans. Umsvifin í eigna­stýr­ingu aukast jafnt og þétt og bank­inn er í for­ystu­sveit þegar kemur að við­skiptum í kaup­höll. Okkur þykir afar ánægju­legt að fleiri ein­stak­lingar og fyr­ir­tæki sjái sér hag í að beina við­skiptum sínum til bank­ans.“

Hagn­aður frá hruni um 190 millj­arðar

Lands­bank­inn hagn­að­ist um  36,5 millj­­arða króna í fyrra. Líkt og áður sagði ­skýrist sá hagn­aður að mestu vegna auk­ins hagn­aðar af hluta­bréfum og mark­aðs­skulda­bréfum og ­vegna leið­rétt­ingar á sölu­hagn­aði hlut­­deild­­ar­­fé­lags hans. 

Sam­tals nem­ur hagn­aður Lands­­bank­ans frá hruni 190,1 millj­­örðum króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None