Vilja einkafjárfesta að Keflavíkurflugvelli

Meirihluti fjárlaganefndar vill að einkaaðilar komi að fjármögnun 70 til 90 milljarða króna uppbyggingar á Keflavíkurflugvelli. Í Evrópu tíðkist að flugvellir séu að hluta eða að öllu leyti í eigu einkaaðila.

flugvél
Auglýsing

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar telur að huga eigi að því að fá einka­að­ila til að taka þátt í fjár­mögnun á upp­bygg­ingu flug­vall­ar­mann­virkja í Kefla­vík. Á næstu árum er gert ráð fyrir að fram­kvæmdir við Kefla­vík­ur­flug­völl muni kosta á bil­inu 70 til 90 millj­arða króna og að flug­völl­ur­inn geti tekið við um 14 millj­ónum far­þega eftir þær ef álag dreif­ist á sama hátt og það ger­ist nú. Meiri­hlut­inn telur það „umhugs­un­ar­efni að á síð­ustu sex árum hefur þeim flug­völlum í Evr­ópu sem eru í bland­aðri eigu ríkis og einka­að­ila eða alfarið í eigu eink­að­ila fjölgað hlut­falls­lega úr 23% í 55%. Nú fara 80% flug­far­þega til og frá Evr­ópu og innan Evr­ópu um slíka flug­velli. Á sama tíma ætlar íslenska ríkið að fjár­magna og taka áhætt­una alfarið af þessum stóru fram­kvæmd­um. Meiri hlut­inn telur að huga beri að nýjum fjár­mögn­un­ar­leiðum við fyr­ir­hug­aða upp­bygg­ingu flug­vall­ar­mann­virkja í Kefla­vík­.“ 

Þetta kemur fram í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta fjár­laga­nefnd­ar vegna til­lögu til þings­á­lykt­unar um fjár­mála­á­ætlun fyrir árin 2017–2021 sem Kjarn­inn hefur undir hönd­um. Undir álitið skrifa þeir þing­menn stjórn­ar­flokk­anna sem sitja í fjár­laga­nefnd. Vig­dís Hauks­dótt­ir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, er for­maður nefnd­ar­innar og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er vara­for­maður henn­ar. Nánar verður fjallað um nefnd­ar­á­litið á Kjarn­anum síðar í dag.

Á við tvö hátækni­sjúkra­hús

Guð­laugur Þór segir við Morg­un­blaðið í dag að fjár­fest­ing Isa­via í stækkun Kefla­vík­ur­flug­vallar sé mikil og nauð­syn­leg. Fyr­ir­tækið sé hins vegar í eigu rík­is­ins, á ábyrgð þess og fjár­fest­ingin ekki áhættu­laus. „Þarna erum við að tala um fjár­fest­ingu sem jafn­gildir nær tveimur hátækni­sjúkra­hús­um, hvorki meira né minna. Og þetta eru sann­ar­lega mjög mik­il­vægar fram­kvæmdir og lúta að einni mik­il­væg­ustu burð­ar­stoð íslensks efna­hags­lífs, ferða­þjón­ust­unni. En þegar þetta mikla fjár­magn fer í þessa upp­bygg­ingu þá er ekki hægt að ráð­ast af sama krafti í aðra mjög mik­il­væga upp­bygg­ingu sem er ekki síður nauð­syn­leg.“

Auglýsing

Nýverið var greint frá því í Frétta­tím­anum að Icelandair sé að kanna af mik­illi alvöru að reisa nýjan inn­an­lands­flug­völl í Hvassa­hrauni með mögu­leika á milli­landa­flugi, þar sem ljóst sé að Reykja­vík­ur­flug­velli verði lok­að. Fyr­ir­tækið ætlar að hefja til­rauna­flug af svæð­inu vegna þessa. Hvassa­hraun var sá staður sem Rögnu­nefndin svo­kall­aða komst að nið­ur­stöðu um að væri hent­ugastur fyrir inn­an­lands­flug. Ef af yrði myndi Icelandair reisa flug­völl­inn sjálft. 

Skúli Mog­en­sen, for­stjóri WOW air, hefur hins vegar sagt að hann telji það skelfi­lega fjár­fest­ingu að byggja nýjan flug­völl skammt frá þeim sem fyrir er. Stækkun Kefla­vík­ur­flug­vallar væri mun betri leið. Skúli sagði í sam­tali við Túrista.is að það vel koma til greina að WOW myndi byggja eigin flug­stöð við núver­andi flug­vall­ar­svæði, en þá myndi vera um einka­fjár­fest­ingu að ræða. „Það er alþekkt fyr­ir­komu­lag og eitt­hvað sem við hefðum áhuga á að skoða og ég hef áður nefn­t.”

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None