Bandarískir aflandskrónueigendur kaupa í íslenskum fyrirtækjum

Á meðal þeirra fyrirtækja sem sjóðir Eaton Vance hafa keypt í að undanförnu er smásölurisinn Hagar, sem á Bónuskeðjuna.
Á meðal þeirra fyrirtækja sem sjóðir Eaton Vance hafa keypt í að undanförnu er smásölurisinn Hagar, sem á Bónuskeðjuna.
Auglýsing

Sjóðir í stýr­ingu banda­ríska sjóða­stýr­inga­fyr­ir­tæk­is­ins Eaton Vance Mana­gement, sem er stór­tækur aflandskrónu­eig­andi, hafa á síð­ustu vikum og mán­uðum keypt hluta­bréf í mörgum af þekkt­ustu skráðu fyr­ir­tækjum Íslands. Nú er svo komið að tveir sjóðir á vegum þess - Global Macro Port­folio og Global Macro Absolute Return Advantage - eru sam­an­lagt komnir í hóp tíu stærstu hlut­hafa Eim­skipa og Reita fast­eigna­fé­lags. Þá er annar sjóð­ur­inn einnig kom­inn á lista yfir 20 stærstu hlut­hafa Haga, stærsta smá­sölu­fyr­ir­tækis á Íslandi.  Þá hafa sjóð­irnir eign­ast 1,7 pró­sent hlut í HB Granda, eina skráða sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins. Frá þessu er greint í DV í dag. Þar segir að sam­an­lagt virði eign­ar­hluta sjóð­anna í þessum fjórum fyr­ir­tækjum sé vel á fimmta millj­arð króna.

Eaton Vance er einnig á meðal stærstu eig­enda aflandskrónu­eig­enda á Íslandi. Sam­an­lagt var talið að sjóðir fyr­ir­tækj­anna ættu um 30 pró­sent af aflandskrónu­hengj­unni sem var til staðar í vor.

Seðla­banki Íslands hélt tvö aflandskrón­u­út­boð í júní þar sem eig­endum aflandskróna bauðst að skipta þeim yfir í evrur gegn afslætti. Fjöldi banda­rískra sjóða sem eiga slíkar ákváðu að taka ekki þátt í útboð­unum tveim­ur, en í því síð­ari bauðst bank­inn til að kaupa krónur þeirra fyrir 190 krónur á hverja evru. Fjár­­hæð sam­­þykktra til­­­boða í báðum útboð­unum var 83 millj­­arðar króna og hækk­­aði ein­ungis um fimm millj­­arða króna milli útboða. Alls voru 188 millj­­arðar króna boðnir í útboð­inu en heild­­ar­um­­fang aflandskrón­u­vand­ans var fyrir það um 319 millj­­arðar króna. Sjóðir Eaton Vance voru á meðal þeirra sem tóku ekki þátt í útboð­un­um.

Auglýsing

Sjóð­irnir ætla heldur ekki að sætta sig við að eignir þeirra verði settar inn á nær vaxta­­lausa reikn­inga í refs­ing­­ar­­skyni fyrir að taka ekki þátt í útboð­unum á því gengi sem Seðla­­bank­inn hefur boðið þeim.  Þess í stað hafa sjóð­irnir falið lög­­­manni sínum að kanna grund­­völl fyrir mög­u­­legri máls­höfðun á hendur íslenska rík­­inu auk þess sem þeir hafa kvartað til Eft­ir­lits­­stofn­unar EFTA (ESA) vegna laga­­setn­ingar sem sam­­þykkt voru aðfara­nótt 23. maí síð­­ast­lið­ins, og þeir telja að feli í sér eign­­ar­­upp­­­töku og brot á jafn­­ræð­is­­reglu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None