Ásmundur kvartar yfir rasista-stimpli frá Samfylkingu

Ásmundur Friðriksson spurði Oddnýju Harðardóttur út í Samfylkingarfólk sem hefði kallað hann rasista á þingi í dag. Oddný sagðist ekki segja sínu fólki fyrir verkum, en áhersla væri lögð á mannvirðingu og mannúð.

Ásmundur Friðriksson
Auglýsing

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, kvart­aði undan Sam­fylk­ing­ar­fólki sem hefur kallað hann ras­ista í ræðu á Alþingi nú síð­deg­is. Hann beindi fyr­ir­spurn til Odd­nýjar Harð­ar­dótt­ur, for­manns Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, og spurði hvort þetta væri sú leið sem Sam­fylk­ingin vildi fara. 

Í lok þings­ins í vor, rétt fyr­ir­ hlé, þá kall­aði for­mað­ur­inn mig Don­ald Trump og lýsti mér sem ein­hverjum ras­ista í því sam­bandi. Hún hefur hrósað Semu Erlu Serdar fyrir að kalla mig ras­ista á opin­berum vett­vangi og henn­i fannst það vel að verki stað­ið,“ sagði Ásmundur meðal ann­ars. Hann tal­aði líka um nýleg ummæli rit­ara Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, Ósk­ars Steins Jón­ínu Ómars­son­ar, um fram­bjóð­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi og fann að því að hann sjálfur hefði verið kall­aður ras­isti, Ragn­heiður Elín Árna­dóttir dug­laus og Árni John­sen dæmdur þjóf­ur. Hann sagði þessa umræðu á vegum Sam­fylk­ing­ar­innar sýna breyttar áherslur og spurði hvort þetta væri inn­legg flokks­ins í sann­gjarn­ari umræðu í þjóð­fé­lag­in­u. 

Oddný svar­aði Ásmundi á þing­inu og sagði: „Engum hef ég hrósað fyrir að kalla hátt­virtan þing­mann ras­ista. Í Sam­fylk­ing­unni ríkir mál­frelsi og ­for­mað­ur­inn segir félögum ekki til hvað þau megi segja og hvað ekki.“

Auglýsing

Hún sagði að hún legði áherslu á að mannúð og mann­virð­ing væri alltaf í fyr­ir­rúmi, og þing­menn þurfi ekki síst að gæta orða sinna. Þeg­ar Ásmundur hafi velt því fyrir sér­ hvort ekki þyrfti að kanna bak­grunn þeirra múslima sem búi á Ís­landi, til að kanna tengsl við hryðju­verk, hafi margir orðið reiðir og sár­ir. „Ein­hverjir skildu hátt­virt­an ­þing­mann svo að hann væri að hvetja til mis­mun­unar og ýta und­ir­ ­for­dóma.“

Hún sagði það geta reynst sumum freist­ing í aðdrag­anda kosn­inga að tala inn í ótt­ann við hið óþekkta. „Við sem á Alþingi sitjum eigum að ­gæta hags­muna allra, óháð trú, og var­ast að ýta undir hatur og ­for­dóma.“ 

Vildi snúa flótta­mönnum við í Leifs­stöð

Um miðjan jan­úar í fyrra spurði Ásmundur að því á Face­­book síðu sinni hvort bak­grunnur múslima á Íslandi hafi verið kann­að­­ur, og hvort ein­hverjir þeirra hafi farið í þjálf­un­­ar­­búðir hryðju­verka­­manna eða barist í löndum þar sem „óöld ríkir meðal múslima.“ Hann sagð­ist í kjöl­farið vera að vekja umræðu um þessi mál. „Ég velti því fyrir mér hvort við þurfum að hafa áhyggjur af því að hér leyn­ist slíkt fólk. Ég hef ekki hug­­mynd um það. Mér finnst að við eigum að taka umræð­una um það. Hvað við viljum gera og hvernig við viljum standa að þessu,“ sagði hann í við­tali við Vísi.

Ásmundur gerði hryðju­verkin í Kaup­­manna­höfn svo að umtals­efni í febr­úar í fyrra. „Nú lýsa trú­bræður morð­ingj­ans yfir stuðn­­ingi við hann. Í nágranna­löndum okkar er opin umræða um þá hættu sem steðjar að hinum frjálsa heimi og þjóð­­fé­lögum vegna fjölg­unar á árásum ein­stak­l­inga og hvers konar öfga­hópa. Hér á landi á engin slík umræða sér stað og spurn­ingin hvað við ætlum lengi að skila auðu í þeirri umræðu um öryggi íbú­anna.“ Ásmundur sagði að á Íslandi hefð­ust menn öðru­­vísi að. „Þeir sem vekja athygli á hætt­unni sem steðjar að nágrönnum okkar eru skotnir niður og ataðir auri í sam­­fé­lags­um­ræð­unni sem aldrei kemst á það stig að rætt sé um mál­efn­ið.“

Í byrjun mars á þessu ári sagði hann svo „Það er mik­il­vægt að við skoðum það hvort það sé nauð­­syn­­legt á þess­­ari stundu að flótta­­mönn­um, eða hæl­­is­­leit­end­um, sé snú­ið við í Kefla­vík og þeir sendir aftur til síns heima....Flótta­­manna­­straum­­ur­inn er stór­­kost­­legt vanda­­mál eins og við höfum heyrt á und­an­­förn­um ­mán­uð­­um. Svíar og Danir hafa lokað landa­­mærum sínum til að ­tak­­marka komu flótta­­manna og til að geta fylgst með því hverj­ir koma til lands­ins. Aust­­ur­­rík­­is­­menn og Balk­an­löndin hafa fund­að ­sér­­stak­­lega vegna vanda Schen­­gen-­­svæð­is­ins en Grikk­land er galop­ið og þar streymir flótta­­fólk inn sem aldrei fyrr og á þá greiða ­leið inn í Schen­­gen-lönd­in.“

Ásmundur greiddi atkvæði gegn nýjum útlend­inga­lögum í vor, einn tveggja þing­manna. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None