Sveitarfélögin tapa 15 milljörðum á úrræðum ríkisstjórnar

Dagur B. Eggertsson er borgarstjóri í Reykjavík.
Dagur B. Eggertsson er borgarstjóri í Reykjavík.
Auglýsing

Sveit­ar­fé­lög lands­ins gætu farið á mis við útsvar­tekjur sem nema 15 millj­örðum króna vegna sér­eign­ar­sparn­að­ar­leiðar rík­is­stjórnar Íslands, sem heim­ilar fólki að nýta sér­eign­ar­sparnað sinn skatt- og útsvars­frjálst í nið­ur­greiðslu hús­næð­is­lána. Þrátt fyrir vil­yrði um að sveit­ar­fé­lögum lands­ins verði bætt þetta tekju­tap hefur ekki verið samið um neitt slíkt. Þetta kemur fram í minn­is­blaði um áhrif aðgerð­anna sem Sam­band íslenskra sveit­ar­fé­laga hefur unnið og var kynnt í borg­ar­ráði Reykja­víkur í morgun og Kjarn­inn hefur undir hönd­um.

Þar kemur fram að núgild­andi ráð­stöfun sér­eign­ar­sparn­aðar í nið­ur­greiðslu hús­næð­is­lána, sem gildir frá miðju ári 2014 og út júní á næsta ári, kostar sveit­ar­fé­lög lands­ins sam­tals 4,8 millj­arða króna. Það er sá hluti aðgerð­anna sem kynntar voru sem hluti „Leið­rétt­ing­ar­inn­ar“ fyrir rúmum tveimur árum síð­an. Tekju­tap sveit­ar­fé­lag­anna yrði mun meira ef nýt­ing á aðgerð­inni væri í takt við það sem lagt var upp með, en við kynn­ingu á henni kom fram að búist væri við að Íslend­ingar myndu nota 70 millj­arða króna af sér­eign­ar­sparn­aði til að lækka skuldir sín­ar. Nú þegar rúm­lega 2/3 hluti af gild­is­tíma aðgerð­ar­innar er lið­inn er sam­an­lögð greiðsla sér­eign­ar­sparn­aðar inn á hús­næð­is­lán vegna aðgerð­ar­innar þó ein­ungis um 24 millj­arðar króna. 

„Fyrsta fast­eign· eykur tekju­tap sveit­ar­fé­laga

Á mánu­dag kynnti rík­is­stjórnin við­bót­ar­úr­ræði þar sem fólk er gert kleift að nota sér­eign­ar­sparnað sinn til að greiða niður hús­næð­is­skuld­ir. Annað þeirra úrræða snýst um að lengja „Leið­rétt­ing­ar“-­tíma­bilið sem allir sér­eign­ar­spar­endur geta nýtt sér fram á mitt ár 2019. Hitt snýst um að fyrstu fast­eigna­kaup­endur geti notað sér­eign­ar­sparnað skatt- og útsvars­frjálst í tíu ár til að borga niður lán, safna sér fyrir hús­næði eða nið­ur­greiða afborg­an­ir. Í minn­is­blaðið Sam­bands íslenskra sveit­ar­fé­laga segir að fram­leng­ing úrræð­is­ins muni kosta sveit­ar­fé­lög lands­ins sam­tals 3,2 millj­arða króna í tap­aðar útsvars­tekjur og að úrræðið „Fyrsta fast­eign“ muni kosta 7,2 millj­arða króna yfir tíu ára tíma­bil. Sam­tals muni sveit­ar­fé­lög lands­ins því fara á mis við útsvars­tekjur upp á 15 millj­arða króna vegna sér­eign­ar­sparn­að­ar­að­gerða rík­is­stjórn­ar­inn­ar. 

Auglýsing

Sveit­ar­fé­lögin una ekki bóta­leysi

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, fjallar um málið í stöðu­upp­færslu á Face­bookÞar bendir hann á að tapið dreif­ist víða. „Hlut­falls­lega mest tap er í Kópa­vogi, Hafn­ar­firði og Mos­fells­bæ. Hlut­falls­lega mikið tap Grýtu­bakka­hrepps vekur reyndar sér­staka athygli. Sem dæmi má nefna að borgin verður af meira en 600 mkr króna útsvars­tekjum í fyrra vegna þessa. Ljóst er að sveit­ar­fé­lögin í land­inu munu ekki una því að þetta verði ekki bætt, líkt og lýst hefur verið yfir­.“ 

Dagur á þar við yfir­lýs­ingar Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um að útsvar­stap sveit­ar­fé­laga yrði bætt. Það hafi ekki gengið eft­ir.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None