Meniga fær milljarð í nýja fjármögnun og sækir fram

Benedikt_Einarsson.fjarmalastjori_Meniga.jpg
Auglýsing

Íslenska hug­bún­að­ar­fyr­ir­tækið Meniga lauk á fyrri helm­ing árs­ins fjár­mögn­un að fjár­hæð 7,3 millj­ónum evra, eða sem nemur um einum millj­arði króna. Fjár­mögn­unin fór fram með aukn­ingu hluta­fjár frá núver­and­i fjár­festum undir for­ystu Frum­taks og hol­lenska fjár­fest­inga­fé­lags­ins Velocity Capi­tal sem og láns­fé, að því er segir í til­kynn­ingu.

Bene­dikt Orri Ein­ars­son, fjár­mála­stjóri Meniga (á með­fylgj­andi mynd), segir í frétta­til­kynn­ingu að grunn­rekst­ur­inn styrk­ist við fjár­mögn­un­ina. „Meniga hefur vaxið ört frá stofnun fyr­ir­tæk­is­ins árið 2009 en starfs­menn Meniga eru nú um 100 tals­ins. Flestir starfa á Íslandi en fyr­ir­tækið er einnig með skrif­stofur í London og Stokk­hólmi. Fjár­mögn­unin gefur Meniga tæki­færi til að halda áfram þróun á hug­bún­aði í tengslum við neyslu­tengd til­boð ásamt því að styrkja grunn­rekstur félags­ins og áfram­hald­andi sókn á erlenda mark­að­i.“ 

Willem Willem­stein eig­andi og fram­kvæmda­stjóri Velocity Capi­tal hefur tekið sæti í stjórn Meniga í kjöl­farið af fjár­mögn­un­inni.

Auglýsing

Meniga er leið­andi á heims­vísu í þró­un heim­il­is­fjár­mála­lausna fyrir banka og fjár­mála­stofn­anir sem not­aðar eru í næst­u kyn­slóð net­banka til að bæta þjón­ustu við við­skipta­vini. Með­al­ við­skipta­vina Meniga eru nokkrir stærstu banka heims en þeirra á meðal eru Sant­and­er, mBank, Intesa San­pa­olo og ING Direct. Þannig drífa hug­bún­að­ar­lausnir ­Meniga áfram net­banka í um 20 löndum með yfir 35 millj­ónir virka not­end­ur.

Fjár­mögn­un­inni er ætlað að efla enn frekar sókn fyr­ir­tæk­is­ins á erlenda ­mark­aði en auk áherslu á heim­il­is­fjár­mála­hug­búnað hefur Meniga meðal ann­ar­s ­þróað neyslu­tengt til­boðs­kerfi (e. Card Lin­ked Offer­s). 

„Til­boðs­kerf­inu er ætl­að að hjálpa ein­stak­lingum og fjöl­skyldum að spara með sér­sniðnum til­boðum ásam­t því að hjálpa fyr­ir­tækjum að nýta betur mark­aðsfé sitt með því að ná til réttra við­skipta­vina,“ segir í til­kynn­ing­unn­i. 

Íslenskum not­endum Meniga stendur til boða að nýta sér slík­ til­boð, sem ganga undir nafn­inu Kjör­dæmi á Íslandi, og aðrar lausnir Meniga gjald­frjálst á vef fyr­ir­tæk­is­ins www.­meniga.is eða í Meniga app­inu fyrir iPhone and Android síma.

Um Meniga: Meniga er íslenskt hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæki sem hef­ur ­starfs­stöðvar í Reykja­vík, London og Stokk­hólmi. Félagið var stofnað 2009 og er í dag mark­aðs­leið­andi á heims­vísu í þróun og sölu heim­il­is­fjár­mála­lausna fyr­ir­ ­banka og fjár­mála­fyr­ir­tæki. Lausnir félags­ins eru nú aðgengi­legar yfir 35 millj­ónum not­endum í um 20 lönd­um. Meniga hefur hlotið ýmis alþjóð­leg verð­laun ­fyrir nýsköpun og til að mynda bestu tækni­lausn­ina árin 2011, 2013 og 2015 á F­inovate Europe, sem er ein þekktasta og virtasta ráð­stefnan um tækninýj­ungar í banka- og fjár­mála­þjón­ustu. Frek­ari upp­lýs­ingar má finna á www.­meniga.is og www.­meniga.com.

Um Frum­tak: Frum­tak er sam­lags­sjóður í eigu Nýsköp­un­ar­sjóðs atvinnu­lífs­ins, sex af stærstu líf­eyr­is­sjóðum lands­ins og þriggja banka. Frum­tak fjár­festir í ný­sköp­un­ar-­fyr­ir­tækjum sem þykja væn­leg til vaxtar og útrás­ar.  Mark­mið Frum­taks er að byggja upp öflug fyr­ir­tæki sem geta verið leið­andi á sínu svið­i og um leið skilað góðri ávöxtun til fjár­festa. Frek­ari upp­lýs­ingar má finna á www.frum­tak.is.

Um Velocity Captital: Velocity Capi­tal er hol­lenskur fjár­fest­inga­sjóður sem sér­hæfir sig meðal ann­ars í fjár­fest­ingum í fyr­ir­tækjum sem fram­leiða fjár­mála­hug­bún­að. Sjóð­ur­inn er með fjár­fest­ingar í Evr­ópu, Asíu, Banda­ríkj­unum og Afr­íku

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None