Forsætisráðherra segir þingstörf geta teygst fram í október

Sigurður Ingi Jóhannsson
Auglýsing

Sig­urður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra segir að þingið geti hugs­an­lega setið fram í októ­ber ef þurfa þyk­ir. Þetta kom fram í ræðu hans á Alþingi í dag. Stjórn­ar­and­staðan gagn­rýndi mjög lít­inn fram­gang þing­starfa í þing­inu, sér­stak­lega í ljósi þess að sam­kvæmt end­ur­skoð­aðri starfs­á­ætlun þings­ins frá því í vor á því að ljúka eftir viku. 

Það hefur komið mér aðeins á óvart að heyra hérna til dæmis í fund­ar­stjórn, heyrði það í þing­inu í gær, aðeins þau ­sjón­ar­mið sem komu fram hjá hátt­virtum þing­manni um að hér sé þriggja vikna starfs­á­ætlun og svo muni þing­inu ljúka vegna þess að á fundi með for­mönnum flokk­anna sem ég og fjár­mála­ráð­herra átt­u­m í aðdrag­anda þings­ins kynntum við þær hug­myndir um að fresta ­sam­komu­degi þings­ins, halda áfram þing­störfum fram í sept­em­ber, hugs­an­lega út sept­em­ber og lengur ef þurfa þykir með þeirri ­nið­ur­stöðu að kjósa í lok októ­ber. Þetta eru ekki nein ný ­tíð­ind­i,“ sagði Sig­urður Ing­i. 

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra tók í svip­aðan streng og sagði að það hlyti að hafa verið öllum ljóst þegar breyt­ingar á starfs­á­ætlun hafi verið sam­þykktar í vor að það yrði með þeim fyr­ir­vara að enn ætti eftir að koma í ljós hvenær boðað yrði til kosn­inga og hvernig þing­störf gengju. Síðar í umræð­unni sagði hann að þeir Sig­urður Ingi hefðu verið af­skap­lega skýrir með það á fundum með öllum flokkum að til stæði að breyta sam­komu­degi nýs þings. „Við höfum jafn­framt verið skýrir með það að að öllu óbreyttu muni þurfa að fjölga þing­dög­um. Þetta tel ég að ætti ekki að koma neinum í opna skjöld­u.“ 

Auglýsing

Þessu voru stjórn­ar­and­stæð­ingar hins vegar ósam­mála. Svan­dís Svav­ars­dótt­ir, þing­flokks­for­maður VG, sagði engar for­sendur hafa breyst frá því að starfs­á­ætlun þings­ins var sam­þykkt í vor. „Hér hefur ver­ið unn­ið vel en á sama tíma ger­ist það núna í óund­ir­bún­um ­fyr­ir­spurna­tíma að hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra, sem er for­ystu­mað­ur­ fram­kvæmd­ar­valds­ins, lætur eins og starfs­á­ætlun Alþingis sé einskis virði, sé ekki papp­írs­ins virði. Hann kemur hingað inn­ og til­kynnir Alþingi það og for­seta þar á meðal að til stand­i að funda hér ein­hverjum vikum saman eftir að starfs­á­ætl­un Al­þingis er lok­ið. Þetta er ótækt­.“ 

Bryn­hildur Pét­urs­dótt­ir, þing­flokks­for­maður Bjartrar fram­tíð­ar, sagði það koma veru­lega á óvart að heyra Sig­urð Inga lýsa því yfir að þing myndi sitja jafn­vel út sept­em­ber. „Við erum með starfs­á­ætlun sem er sam­þykkt af for­sætis­nefnd og for­seta. Ég veit ekki til hvers við erum með starfs­á­ætlun ef við ætlum síðan ekki að virða hana.“ 

Össur Skarp­héð­ins­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, sagði ljóst að meiri­hlut­inn væri að þvæla málum fram yfir áætluð þing­lok til að geta tafið kosn­inga­bar­átt­una. „Þeir ætla að halda þing­inu hérna eins lengi og eins nálægt kosn­ingum og þeir geta.“ 

Líkt og fram kom í Kjarn­anum í gær þurfti að fresta þremur atkvæða­greiðslum um frum­vörp rík­is­stjórn­ar­innar í gær vegna lélegrar mæt­ingar þing­manna. Það var svo aftur til­fellið í dag og kom fram í ræðu Ótt­ars Proppé, for­manns Bjartrar fram­tíð­ar, að þrír stjórn­ar­þing­menn hafi verið í þing­sal í dag. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None