Stjórnendur og innherjar í Högum seldu hlutabréf sín í félaginu

Bónus er stærsta verslunarkeðjan innan Haga.
Bónus er stærsta verslunarkeðjan innan Haga.
Auglýsing

Helstu stjórn­endur smá­söluris­ans Haga og aðilar tengdir þeim hafa selt hluti sína í félag­inu á und­an­förnum vik­um. Á meðal þeirra sem það hafa gert eru Guð­mundur Mart­eins­son, fram­kvæmda­stjóri Bón­us, og eig­in­kona hans sem seldu bréf fyrir um 100 millj­ónir króna í síð­ustu viku. Eig­in­kona Finns Árna­son­ar, for­stjóra Haga, seldi einnig hluti fyrir tæp­lega 50 millj­ónir króna í júlí og Kjartan Már Frið­steins­son, fram­kvæmda­stjóri Ban­ana ehf., dótt­ur­fyr­ir­tækis Haga, seldi allan hlut sinn í félag­inu í sama mán­uði. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag. 

Þar er salan á hlut­unum sett í sam­hengi við komu Costco á íslenskan smá­sölu­mark­að, sem mun eiga sér stað á næsta ári og áhyggjur af því að sú inn­reið muni hafa nei­kvæð áhrif á hluta­bréfa­verð í Hög­um. Hvorki Guð­mundur né Finnur vildu ræða söl­una á hluta­bréf­unum við Frétta­blað­ið. 

30 pró­sent lægra vöru­verð

 Í jan­úar 2015 var stað­­fest að Costco, sem er önnur stærsta smá­­sölu­versl­un­­ar­keðja í heimi, ætl­­aði sér að opna risa­verslun í Garðabæ og að samn­ingar þess efnis væri langt komn­­ir. Þá stóð til að versl­unin myndi opna á fyrri hluta árs­ins 2016 en síðar var sú dag­­setn­ing færð aftur til nóv­­em­ber­mán­að­­ar. Nú stendur til að versl­unin opni á næsta ári.

Auglýsing

Í skýrslu sem fyr­ir­tækið Zenter vann um komu Costco til Íslands í byrjun jún­í­mán­aðar sagði að inn­­koma fyr­ir­tæk­is­ins myndi umbylta íslenska mark­aðn­­­um. Costco byði að jafn­­aði upp á 30 pró­­sent lægra vöru­verð en gengur og ger­ist hér­­­lendis og við­mið þess í álagn­ingu er að leggja ein­ungis 15 pró­­sent ofan á vör­­ur.

Í versl­unum Costco eru seldar allskyns vör­­ur. Þar er meðal ann­­ars boðið upp á mat­vöru, heim­il­is­tæki, raf­­tæki, hús­­gögn, dekk, föt, elds­­neyti, skart­­gripi og gler­­augu. Því verða áhrif inn­­komu fyr­ir­tæk­is­ins á íslenska smá­­sölu nokkuð víð­tæk og ná yfir ansi marga und­ir­­mark­aði henn­­ar. Til að átta sig á stærð­­argráðu fyr­ir­tæk­is­ins Costco þá má benda á að það veltir um það bil tíu sinnum meira en íslenska hag­­kerfið á ári.

Fengu gef­ins hluti eftir að hafa selt hluti

Eftir að dótt­ur­fé­lag Arion banka tók yfir Haga og end­ur­skipu­lagði félagið í kjöl­far hruns­ins lét það fimm stjórn­endum Haga í té hluti í félag­inu án end­ur­gjalds og greiddi skatta af hlunn­ind­unum í tengslum við sam­komu­lag sem batt þá til starfa hjá félag­inu. Heild­ar­verð­mæti gjörn­ings­ins var um 340 millj­ónir króna. Var sam­komu­lagið gert í tengslum við sölu á 20 til 30 pró­senta hlut í Högum í Kaup­höll­inni til nýrra eig­enda, þegar félagið var skráð á markað fyrst félaga eftir banka­hrun.

Tveir stjórn­end­anna voru þeir Finnur Árna­son og Guð­mundur Mart­eins­son sem fengu hvor 0,4 pró­senta hlut í félag­inu. Þeir Finnur og Árni áttu áður tals­vert hlutafé í Högum sem þeir seldu til félags­ins sjálfs á árunum 2008 til 2009 fyrir hund­ruð millj­óna króna. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent