Innbyrðis flugvallardeila hjá Framsóknarflokknum

Innanflokksátök í Framsóknarflokknum eru að koma upp á yfirborðið í tengslum við flugvöllinn í Vatnsmýrinni.

Höskuldur Þórhallsson
Auglýsing

Inn­an­flokksá­tök í Fram­sókn­ar­flokknum eru nú komin upp á yfir­borðið í umræðum um flug­völl­inn í Vatns­mýri. Hösk­uldur Þór­halls­son þing­mað­ur, sem sæk­ist eftir odd­vita­sæt­inu í Norð­aust­ur­kjör­dæmi eins og for­mað­ur­inn Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, skrif­aði grein í Frétta­blaðið í morgun þar sem hann gagn­rýnir Sig­mund Davíð harð­lega. 

Hösk­uldur sagð­ist taka undir harða gagn­rýni Sig­mundar á sölu rík­is­ins á flug­vall­ar­landi í Vatns­mýr­inni til borg­ar­inn­ar, en að hann geri veru­legar athuga­semdir við það sem hann segir ávirð­ingar hans í garð rík­is­stjórnar Sig­urðar Inga Jóhanns­son­ar, rangar sögu­skýr­ingar og vill­andi efn­is­tök. 

Hann segir að í fyrsta lagi hafi Sig­urður Ingi og þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins gagn­rýnt sölu á flug­vall­ar­land­inu harð­lega, en þeir hafi hvergi komið að mál­inu, heldur hafi það verið ákvörðun inn­an­rík­is- og fjár­mála­ráð­herra, sem bæði til­heyri Sjálf­stæð­is­flokkn­um. Þá segir Hösk­uldur það ótrú­verð­ugt ef ekki bein­línis rangt hjá Sig­mundi Davíð að halda því fram að hann hafi gert það að skil­yrði fyrir und­ir­ritun sam­komu­lags við borg­ina um stofnun Rögnu­nefnd­ar­innar að hinni svoköll­uðu neyð­ar­braut yrði ekki lok­að. Það komi hvergi fram í gögn­um. 

Auglýsing

Hörð við­brögð

Í kjöl­farið steig Guð­finna Jóhanna Guð­munds­dóttir borg­ar­full­trúi Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina fram á Face­book-­síðu sinni til varnar Sig­mundi Dav­íð. Hún sagði að Hösk­uldur hefði ekki sett sig inn í flug­vall­ar­málið eins og honum hafi borið að gera sem for­manni umhverf­is- og sam­göngu­nefnd­ar. „Þessi per­sónu­lega óvild hans í garð „Sig­mundar er alveg vand­ræða­leg og end­ur­spegl­ast í þekk­ing­ar- og áhuga­leysi Hösk­uldar á flug­vall­ar­mál­inu. Hösk­uldur sem for­maður umhverf­is- og sam­göngu­nefndar var í lyk­il­stöðu til að koma í veg fyrir lokun neyð­ar­braut­ar­innar en hann tók ekk­ert mark á inn­sendum athuga­semdum og rökum. Hösk­uldur sem for­maður umhverf­is- og sam­göngu­nefndar er sá aðili sem hefði getað brugð­ist við þegar örygg­is­nefnd Félags íslenskra atvinnu­flug­manna sendi vel rök­studdar athuga­semdir á umhverf­is- og sam­göngu­nefnd í sept­em­ber í fyrra um að not­hæf­is­stuð­ull­inn væri rangt reikn­að­ur.“ Valdið hafi verið Hösk­uldar en hann hafi ekki notað það. „Margt hefur veið skrifað og sagt í flug­vall­ar­mál­inu, þessi grein hans Hösk­uldar slær öll met í þekk­ing­ar­leysi.“ 

Þessi gagn­rýni Guð­finnu var tekin upp í fjöl­miðlum og Gunnar Bragi Sveins­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, er einn þeirra sem tekur undir með Guð­finnu með því að deila frétt RÚV um ummæli hennar á Face­book-­síðu sinn­i. 

Jóhannes Þór Skúla­son, aðstoð­ar­maður Sig­mundar Dav­íðs, gerir líka lítið úr grein Hösk­uldar á Face­book-­síðu sinni, en hann deilir grein yfir­manns síns. 

Hösk­uldur hefur verið einna gagn­rýn­astur fram­sókn­ar­manna í garð Sig­mundar Dav­íðs. Hann er ekki ein­ungis að bjóða sig fram gegn honum í Norð­aust­ur­kjör­dæmi heldur hefur hann hvatt Sig­urð Inga Jóhanns­son til þess að bjóða sig fram til for­manns gegn Sig­mundi. Haust­fundur mið­stjórnar flokks­ins verður í Hofi á Akur­eyri á laug­ar­dag­inn og þar verður flokks­þing boð­að, þar sem kosið verður um for­ystu flokks­ins. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None