Þorgerður Katrín í framboð fyrir Viðreisn

framti-flugvallar-i-vatnsmyri_18963223538_o.jpg
Auglýsing

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, fyrr­ver­andi vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, mun leiða lista Við­reisnar í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Þetta er full­yrt í DV í dag. Þor­gerður Katrín hefur ekki viljað svarað með afger­andi hætti spurn­ingum fjöl­miðla um hvort hún hyggi á fram­boð fyrir hinn nýja flokk en orðrómur um það hefur verið afar hávær um langt skeið. 

Þor­gerður Katrín mun því fara fram í sama kjör­dæmi og Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sit­ur. Bjarni og Þor­gerður Katrín eru fyrr­ver­andi sam­herjar og vin­ir. 

Þor­gerður Katrín hefur starfað hjá Sam­tökum atvinnu­lífs­ins (SA) und­an­farin þrjú ár. Þor­steinn Víglunds­son, sem var fram­kvæmda­stjóri SA á þeim tíma, hefur einnig til­kynnt fram­boð fyrir Við­reisn og ætlar að leiða lista flokks­ins í öðru hvoru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu.

Auglýsing

Þor­gerður Katrín hefur áður setið á Alþingi. Hún tók þar sæti árið 1999 og var mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra árin 2004 til 2009. Hún ákvað hins vegar ekki að gefa kost á sér á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í síð­ustu þing­kosn­ingum og hætti á þingi. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans var mikið þrýst á hana að fara fram fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn að nýju en Þor­gerður Katrín hafn­aði þeim bón­um. Hún hefur þó áfram verið skráð í Sjálf­stæð­is­flokk­inn en ljóst er að hún mun segja sig úr þeim flokki í ljósi nýj­ustu tíð­inda.  

Kjarn­inn fjall­aði ítar­lega um fram­boð Við­reisn­ar, áhrif þess á Sjálf­stæð­is­flokk­inn og mögu­legt fram­boð Þor­gerðar Katrínar í frétta­skýr­ingu nýver­ið. Hana má lesa hér.

Komin mynd á hverjir leiða hjá Við­reisn

Með fram­boði Þor­gerðar Katrínar er komin nokkuð skýr mynd á hverjir muni skipa efstu sætin á lista Við­reisnar í fyrstu kosn­ing­unum sem stjórn­mála­flokk­ur­inn tekur þátt í. Hanna Katrín Frið­­riks­­son, fram­­kvæmd­­ar­­stjóri heil­brigð­is­sviðs Icepharma, sæk­ist eftir því að leiða annað Reykja­vík­­­ur­­kjör­­dæm­ið, og Þor­steinn Víglunds­son mun, líkt og áður sagði, vænt­an­lega leiða hitt. Þá ætla Þor­­­björg Sig­ríður Gunn­laugs­dótt­ir, deild­­­ar­­­for­­­seti laga­­­deildar Háskól­ans á Bif­­­röst, og Pawel Bar­toszek, stærð­fræð­ingur og pist­la­höf­und­­­ur, einnig fram fyrir Við­reisn í Reykja­vík og búist er við að þau verði í næstu sætum fyrir neðan Hönnu Katrínu og Þor­stein.

Bene­dikt Jóhann­es­­­son, for­­­maður Við­reisn­­­­­ar, greindi frá því í síð­ustu viku að hann muni verða í fyrsta sæti á fram­­­boðs­lista flokks­ins í Norð­aust­­­ur­­­kjör­­­dæmi. Áður hafði verið búist við því að hann myndi bjóða fram í öðru hvoru Reykja­vík­­­­­ur­­­kjör­­­dæm­inu. Þá hefur verið greint frá því að Gylfi Ólafs­­­­son, heilsu­hag­fræð­ingur frá Ísa­­­­firði, muni leiða lista Við­reisnar í Norð­vest­­­­ur­­­­kjör­­­­dæmi. Jóna Sól­­­­veig Elín­­­­ar­dótt­ir, aðjúnkt við stjórn­­­­­­­mála­fræð­i­­­­deild Háskóla Íslands, hefur til­­­­kynnt um fram­­­­boð og þykir lík­­­­­­­leg­ust til að vera í efsta sæti á lista flokks­ins í Suð­­­­ur­­­­kjör­­­­dæmi.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None