Aðgöngugjald í Hallgrímskirkjuturn skilar yfir 200 milljónum

Langflestir þeirra sem borga fyrir að fara upp í Hallgrímskirkjuturn eru erlendir ferðamenn.
Langflestir þeirra sem borga fyrir að fara upp í Hallgrímskirkjuturn eru erlendir ferðamenn.
Auglýsing

Tekjur vegna gesta sem heim­sóttu Hall­gríms­kirkju­turn í ár eru áætl­aðar 237 millj­ónir króna. Árið 2010 voru þær 27,2 millj­ónir króna og því hafa næstum nífald­ast á sex árum. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag

Í dag kostar 900 krónur fyrir full­orðna og 100 krónur fyrir börn á aldr­inum 6-16 ára að fara upp í Hall­gríms­kirkju­turn. Lang­flestir þeirra sem heim­sækja turn­inn eru erlendir ferða­menn. Alls keyptu um 200 þús­und gestir sér ferð upp í turn­inn í fyrra sem gaf Hall­gríms­kirkju tekjur upp á 161 milljón króna. Í Frétta­blað­inu segir að áætlað sé að heim­sóknum gesta í turn­inn muni fjölga um 30 pró­sent á milli áranna 2015 og 2016. Því er búist við að gestir hans verði yfir 260 þús­und í árs­lok sem myndi þýða tekjur upp á 237 millj­ónir króna. Tekið er fram að heim­sókn­ar­tölur vegna gesta í turn­inn séu ekki alveg á hreinu og enn sé verið að fá reynslu á nýtt taln­ing­ar­tæki sem tekið var í notkun í byrjun árs. 

Allar tekjur af turn­ferð­un­um renna til Hall­gríms­kirkju og fara meðal ann­ars í að greiða fjögur hund­ruð millj­óna króna banka­lán sem hvílir á kirkj­unni vegna við­halds­fram­kvæmda á turn­inum sem voru 2008-2009. Þá þarfn­ast Hall­gríms­kirkja mik­ils við­halds og nú sé meðal ann­ars unnið að steypu­við­gerðum utan­húss upp á 60 millj­ónir króna. Þá stendur til að end­ur­nýja turn­lyft­una og kaupa nýjan tækni­búnað fyrir kirkju­klukk­ur. Jón­anna Björns­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Hall­gríms­kirkju, segir við Frétta­blaðið að umræddar við­halds­fram­kvæmdir hefðu ekki verið mögu­legar ef ekki væri fyrir tekjur af turn­heim­sókn­um.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None