7DM_4083_raw_1603.JPG
Auglýsing

Hag­vöxtur á árinu 2015 var 4,2 pró­sent og hann var dreg­inn áfram af neyslu og fjár­fest­ingu. Einka­neysla jókst up 4,3 pró­sent í fyrra og fjár­fest­ing um heil 18,3 pró­sent. Útflutn­ingur jókst um 9,2 pró­sent en inn­flutn­ingur um 13,5 pró­sent. Þrátt fyrir að veru­legur afgangur (166,6 millj­arðar króna) hafi verið af vöru- og þjón­ustu­við­skipt­um, fyrst og síð­ast vegna tekna af þjón­ustu við ferða­menn, dró utan­rík­is­verslun úr hag­vexti á árinu. Þetta kemur fram í tölum sem Hag­stofa Íslandsbirti í morg­un.

Hag­vöxt­ur­inn í fyrra var umtals­vert hærri en hann var árið 2014, þegar hann var 1,9 pró­sent. Flestar spár höfðu gert ráð fyrir að hag­vöxtur á árinu 2014 yrði mun meiri og Hag­stofan sjálf hafði til að mynda gert ráð fyrir að hann yrði 2,7 pró­sent. Hag­vöxt­ur­inn í fyrra nær þó ekki þeim hæðum sem hann var árið 2013 þegar hann mæld­ist 4,4 pró­sent. 

Í end­ur­skoð­unum tölum Hag­stof­unnar á áður birtum nið­ur­stöðum kemur ýmis­legt annað merki­legt fram. Stofn­unin hefur til að mynda end­ur­skoðað nið­ur­stöður sínar um hag­vöxt á árinu 2009, árið eftir hrun­ið. Gömlu töl­urnar sögðu að lands­fram­leiðsla hefði dreg­ist saman um 4,7 pró­sent á því ári en nýju töl­urnar mæla sam­drátt­inn tölu­vert meiri, eða 6,6 pró­sent. Kreppan sem Íslend­ingar gengu í gegnum árið 2009 var því mun dýpri en áður var hald­ið. 

Auglýsing

Þjóð­ar­út­gjöld aukast hratt

Hag­stofan hefur einnig birt tölur um lands­fram­leiðslu á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2016. Þar kemur fram að hag­vöxtur var 4,1 pró­sent á fyrri hluta árs­ins en þjóð­ar­út­gjöld, sam­tala neyslu og fjár­fest­ing­ar, jókst um, 9,4 pró­sent. Það er umtals­vert meira en á síð­asta ári þegar þjóð­ar­út­gjöld juk­ust um sex pró­sent. 

Útflutn­ingur hefur auk­ist það sem af er ári um 5,3 pró­sent, sem er meira en í fyrra. Á sama tíma hefur inn­flutn­ingur auk­ist um 16,2 pró­sent, sem er umtals­vert meiri aukn­ing en í fyrra. Sem fyrr er hag­vöxtur drif­inn áfram af einka­neyslu og fjár­fest­ing­u. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None