Guðni Th. Jóhannesson flytur innsetningarræðu sína í Alþingishúsinu 1. ágúst.
Guðni Th. Jóhannesson flytur innsetningarræðu sína í Alþingishúsinu 1. ágúst.
Auglýsing

Fram­boð Guðna Th. Jóhann­es­sonar til for­seta Íslands kost­aði rúm­lega 25 millj­ónir króna. Þetta kemur fram í úrdrætti Rík­is­end­ur­skoð­unar á upp­gjöri Guðna, en allir fram­bjóð­endur verða að skila slíku upp­gjöri eftir kosn­ing­ar. 

Fram­lög fyr­ir­tækja til Guðna námu tæp­lega ell­efu millj­ónum króna en fram­lög ein­stak­linga rúm­lega 13 millj­ón­um. Guðni setti sjálfur rúma milljón í fram­boð­ið. Tekjur fram­boðs­ins námu því sam­tals rúm­lega 26 millj­ónum króna, svo að afgangur upp á 1,2 millj­ónir var að kosn­inga­bar­átt­unni lok­inn­i. 

Níu ein­stak­lingar gáfu fram­boði Guðna á bil­inu 250 þús­und til 400 þús­und krón­ur, en til­greina þarf fram­lög sem eru yfir 200 þús­und krónum sér­stak­lega. Auk þess gáfu 860 ein­stak­lingar til við­bótar sam­tals 10 millj­ónir króna. 

Auglýsing

Meðal þeirra fyr­ir­tækja sem gáfu fram­boði Guðna hámarks­fram­lag, sem er 400 þús­und krón­ur, eru Alvogen, Atl­antsol­ía, Hekla, Sam­skip, Trygg­inga­mið­stöð­in, WOW Air og Ölgerð­in. Einnig gaf almanna­tengsla­fyr­ir­tækið KOM hámarks­upp­hæð, en Frið­jón Frið­jóns­son, einn eig­anda fyr­ir­tæk­is­ins, var í kosn­ingateymi Guðn­a. 

Ekki hafa verið birt upp­gjör ann­arra fram­bjóð­enda sem fengu mest fylgi í kosn­ing­un­um, það er þeirra Höllu Tóm­as­dótt­ur, Dav­íðs Odds­sonar og Andra Snæs Magna­son­ar. Guð­rún Mar­grét Björns­dóttir og Hildur Þórð­ar­dóttir hafa skilað sínum upp­gjör­um. Fram­boð Guð­rúnar kost­aði 536 þús­und krón­ur, þar af lagði hún sjálf til 386 þús­und krónur og Gunnar Egg­erts­son hf. 150 þús­und krón­ur. Hildur eyddi innan við 400 þús­und krónum í sitt fram­boð og þarf því aðeins að skila yfir­lýs­ingu þar um, en ekki upp­gjöri. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None