Evrópusambandið stefnir að fríu Wifi-sambandi í öllum ríkjum

Evrópusambandið stefnir að því koma upp fríu Wifi-sambandi í öllum aðildarríkjum á næstu fjórum árum.

junckernota.jpg
Auglýsing

Jean-Claude Juncker, for­seti fram­kvæmda­ráðs Evr­ópu­sam­bands­ins, greindi frá því í ávarpi í Evr­ópu­þing­inu í gær, að Evr­ópu­sam­bandið stefndi að því að byggja upp frítt Wifi-­sam­band á öllum opin­berum svæðum í aðild­ar­ríkj­unum á næstu fjórum árum. Þá sagð­ist hann einnig von­ast til þess að í það minnsta ein borg í sam­band­inu verði búinn að inn­leiða opið 5G sam­band fyrir um alla borg, fyrir árið 2020. 

Með þessum aðgerðum er stefnt að því að styrkja lífs­kjör fólks og einnig renna stoðum undir sífellt stækk­andi heim inter­nets­ins og sam­fé­lags­miðla. Evr­ópu­sam­bandið hefur þegar fjallað um nauð­syn þess að fólk hafi aðgang að góðu inter­net­sam­band­i. 



Evr­ópu­sam­bandið ætlar sér þó ekki að taka á sig allan kostn­að­inn, heldur munu Evr­ópu­sam­bands­rík­in, og ein­staka borgir og sveit­ar­fé­lag innan þeirra, þurfa að borga hluta af kostn­að­in­um. Um 120 millj­ónir evra eru eyrna­merktar í verk­efni, eða sem nemur um 17 millj­örðum króna.

Í frétt breska rík­is­út­varps­ins BBC er rætt við Mark Newman, grein­anda hjá Conn­ect­i­vityX, sem telur fjár­fest­ingu vera alltof litla. Ef verk­efnið á að ganga eftir þurfi það að vera miklu stærra í snið­um, og ítar­leg áætlun með for­gangs­röðun upp­bygg­ingar þurfi að liggja fyr­ir. 

Auglýsing

Juncker sagði í ávarpi sínu að hin star­fræna ver­öld væri orðin lífs­nauð­syn­leg í lífi fólks, að það væri metn­að­ar­mál fyrir Evr­ópu­sam­bandið að tryggja fólki aðgang að góðu net­sam­bandi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None