Deutsche Bank reynir að semja um lægri sektir

Bandarísk yfirvöld hafa gert Deutsche Bank að greiða 14 milljarða Bandaríkjadala í sektargreiðslu vegna mála er tengjast húsnæðislánatengdum skuldabréfavafningum.

Deutsche Bank
Auglýsing

For­svars­menn Deuts­hce Banka, eins stærsta banka Evr­ópu, sögð­ust í gær ekki hafa neinn hug á því að greiða fjórtán millj­arða Banda­ríkja, rétt um 1.600 millj­arða króna, í sekt­ar­greiðslu vegna mála sem hafa verið til rann­sóknar hjá yfir­völdum í Banda­ríkj­un­um, og tengj­ast skulda­bréfa­vafn­ing­um. Mark­aðsvirði bank­ans féll um rúm­lega átta pró­sent eftir að til­kynn­ing banda­ríska dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins var birt, þar sem bank­anum var gert að greiða 14 millj­arða Banda­ríkja­dala í stjórn­valds­sekt.

For­svars­menn bank­ans gera sér vonir um að stjórn­valds­sektin verði lækk­uð, en við­ræður milli bank­ans og ráðu­neyt­is­ins munu halda áfram á næstu mán­uð­um, þar til end­an­leg nið­ur­staða liggur fyr­ir. For­dæmi eru fyrir því að sektir lækki umtals­vert eftir slíkar við­ræð­ur. Þannig lækk­aði stjórn­valds­sekt Citigroup árið 2012 úr 12 millj­örðum Banda­ríkja­dala í sjö, vegna svip­aðra mála, það er svo­nefndra und­ir­málslána og skulda­bréfa­vafn­inga frá árinu 2007 og 2008.

Auglýsing


Í umfjöllun Bloomberg í dag kemur fram að fjár­festar hafi áhyggjur af því að bank­inn geti ekki tek­ist á við him­in­háar sekt­ir, og þurfi að end­ur­skipu­leggja rekst­ur­inn vegna þeirra, þar á meðal að selja eign­ir. Nú þegar hefur bank­inn sett til hliðar um 6 millj­arða Banda­ríkja­dala til að mæta mögu­legum sekt­um, en það er innan við helm­ingur af sekt­ar­greiðsl­unum sem nú liggja fyr­ir. 

Nú þegar hefur bank­inn greitt um níu millj­arða Banda­ríkja­dala í sekt­ir, frá árinu 2008, eða sem nemur um 1.100 millj­örðum króna.

Sektin kemur líka á vondum tíma fyrir bank­ann núna, að sögn breska rík­is­út­varps­ins BBC, þar sem rekst­ur­inn hefur farið versn­andi. Þannig féllu tekjur bank­ans um 20 pró­sent á öðrum árs­fjórð­ungi þessa árs, miðað við sama tíma í fyrra, og hagn­aður dróst saman um 67 pró­sent.





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None