Gríðarlegir hagsmunaárekstrar ef Trump verður forseti

Rannsókn Newsweek leiðir í ljós að fjöldi erlendra ríkja og fyrirtækja á í viðskiptum við Trump-samsteypuna, svo að hagsmunaárekstrar við utanríkisstefnuna yrðu daglegt brauð ef Donald Trump kæmist í Hvíta húsið.

Donald Trump
Auglýsing

Aldrei fyrr hefur fram­bjóð­andi til­ ­for­seta Banda­ríkj­anna haft jafn mikil fjár­hags­leg tengsl við bæð­i ­banda­menn og óvini Banda­ríkj­anna og Don­ald Trump., og aldrei fyrr hafa við­skipti verið eins mikil ógn við Banda­rík­in. Þetta er ­nið­ur­staða umfangs­mik­illar rann­sóknar Newsweek á við­skipta­tengslum Trump og Trump-­sam­steypunn­ar.

„Ef Don­ald Trump vinnur í þessum ­kosn­ingum og fyr­ir­tæk­inu verður ekki strax lokað eða tengslin við Trump-­fjöl­skyld­una slitin með öllu, gæti utan­rík­is­stefna ­Banda­ríkj­anna vel verið til sölu,“ segir Newsweek.

Trump Org­an­ization hefur ekki ver­ið ­mikið til umfjöll­unar í fjöl­miðl­um, en er risa­stór sam­steyp­a ­sem talið er að tryggi Trump-­fjöl­skyld­unni hund­ruði millj­óna dala á hverju ári. Newsweek tók fjölda við­tala við yfir­menn hjá ­fyr­ir­tæk­inu og alþjóð­lega banda­menn og segir að í ljós hafi komið fyr­ir­tæki með náin tengsl við alþjóð­lega fjár­magns­eig­end­ur, erlenda stjórn­mála­menn og jafn­vel glæpa­menn, þótt ekk­ert bendi til þess að fyr­ir­tæki hafi gert nokk­uð ólög­legt. Einnig hafi komið í ljós mikið flækju­stig í samn­ingum sem væri ekki bara hægt að hætta við ef Trump yrð­i ­for­seti. „EF Trump flytur inn í Hvíta húsið og fjöl­skylda hans heldur áfram að hagn­ast á ein­hvern hátt af þessu fyr­ir­tæki, á meðan eða jafn­vel eftir for­seta­tíð hans, verða hags­muna­á­rekstr­ar­ og sið­ferð­is­leg kvik­syndi í nán­ast öllum ákvörð­unum hans í ut­an­rík­is­mál­u­m.“

Auglýsing

Newsweek bendir á það að í mörg­um ­ríkjum hafi stjórn­völd bein eða óbein völd yfir fyr­ir­tækj­u­m, og þar á meðal sé fjöldi fyr­ir­tækja sem nú þegar sé í við­skiptum við Trump-­sam­steypuna. Þannig gætu stjórn­völd í þessum írkjum reynt að hafa áhrif á Trump sem for­seta með­ við­skiptum við fyr­ir­tæk­ið, og því væri hægt að færa fyr­ir­ því rök að lög­legar mútur frá erlendum ríkjum yrðu raun­hæf­ur ­mögu­leika á meðan hann væri for­seti.

Suð­ur­-Kór­ea, Ind­land, Tyrk­land, ­Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæm­in, Líbýa, Aserbaídsj­an, Rúss­land og Úkra­ína eru meðal þeirra ríkja sem tekin eru dæmi af ­tengslum Trump við í umfjöllun Newsweek, en við­skiptin ná til­ svo margra landa að það sé ómögu­legt að greina hvern einasta hags­muna­á­rekst­ur. Fyr­ir­tækið hefur einnig djúp tengsl við Kína, Bras­il­íu, Búlgar­íu, Argent­ínu, Kana­da, Frakk­land, Þýska­land og fleiri lönd.

Eitt dæmið sem Newsweek seg­ir ­sér­stak­lega trufl­andi eru tengsl Trump við Gadda­fi, fyrrum ein­ræð­is­herra í Líbýu, sem stjórn­völd í Banda­ríkj­unum sögð­u að tengd­ist hryðju­verka­sam­tök­um. Trump sótt­ist eftir við­skipt­u­m við Líbýu­menn og hug­myndin var að koma upp hót­eli við Mið­jarð­ar­haf­ið. Ári síð­ar, árið 2009, bauð Trump Gaddafi að ­leigja húsið sitt í Westchester í New York. Gaddafi borg­að­i honum fyrir leig­una en eftir mót­mæli fólks á staðnum ákvað Trump að banna Gaddafi að vera þar.  

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None