Fylgstu með bensínverðinu á bensínvakt Kjarnans

Í bensínvaktinni er algengt bensínverð á hverjum tímapunkti sundurliðað til þess að auðvelda neytendum að skilja samsetningu bensínverðs á íslenskum markaði.

Í bensínvakt Kjarnans er eldsneytisverðið sundurliðað og uppbygging verðsins við dæluna greind.
Í bensínvakt Kjarnans er eldsneytisverðið sundurliðað og uppbygging verðsins við dæluna greind.
Auglýsing

Algengt bens­ín­verð í sept­em­ber á þessu ári er um 14 krónum lægra en á sama tíma í fyrra og búast má við að verðið muni lækka fram yfir ára­mót. Þetta má greina úr bens­ín­vakt Kjarn­ans sem birt­ist nú á gagna­síðu Kjarn­ans.

Í bens­ín­vakt­inni er algengt bens­ín­verð á hverjum tíma­punkti sund­ur­liðað til þess að auð­velda neyt­endum að skilja sam­setn­ingu bens­ín­verðs á íslenskum mark­aði. Sé sam­setn­ing bens­ín­verðs í sept­em­ber í ár greind þá sést að rúm­lega helm­ingur verðs­ins eru opin­ber gjöld og skatt­ar, eða 57,85 pró­sent. Lík­legt inn­kaupa­verð á bens­ín­lítr­anum er aðeins 22,12 pró­sent og hlutur olíu­fé­lags­ins er um fimmt­ungur af verð­inu.

Fylgstu með bens­ín­verð­inu á Bens­ín­vakt Kjarn­ans
Kann­aðu verðið

Hlutur rík­is­ins er að miklu leyti í formi fastrar krónu­tölu og því hækkar hlut­fallið sem rennur til rík­is­ins að óbreyttu sam­hliða lækk­andi inn­kaupa­verði. Lægst hefur sam­an­lagður hlutur rík­is­ins á tíma­bil­inu verið 43,78% í júlí 2008, en er nú með hæsta móti, hæst í febr­úar 2016 - 58,04%. Hlutur olíu­fé­lags­ins hefur sömu­leiðis sveifl­ast mjög og fór nokkrum sinnum undir 12% á árunum 2009-2012, en hefur hækkað nokkuð stíg­andi síðan 2012 og er sömu­leiðis með hæsta móti um þessar mundir þar sem hann hefur farið í allt að 24%.

Auglýsing

Rétt er að geta þess að til þess að greina elds­neyt­is­verðið þarf að styðj­ast við fyrir fram gefnar for­sendur sem ekki fást opin­berar upp­lýs­ingar um. Opin­ber gjöld, þe. hlutur rík­is­ins, liggur fyrir enda eru gjöldin oft föst krónu­tala eða hlut­falls­leg. Algengt inn­kaupa­verð verður hins vegar að áætla út frá gengi, heims­mark­aðs­verði á olíu og þess hátt­ar. Í þeim útreikn­ingum kann að vera skekkja á hverjum tíma­punkti vegna lag­er­stöðu, skamm­tíma­sveiflna á mark­aði o.s.frv. Hlutur olíu­fé­lags­ins er að lokum reikn­aður sem afgangs­stærð. Hald­góðar upp­lýs­ingar um ein­staka kostn­að­ar­liði olíu­fé­lag­anna eru ekki opin­ber­ar.

Bens­ín­vaktin er upp­færð mán­að­ar­lega og alltaf aðgengi­leg. Í nýrri könnun sem gerð var í Kjarna­sam­fé­lag­inu, sem í eru þeir les­endur mið­ils­ins sem greiða til hans mán­að­ar­lega, kom í ljós að þeir vildu aukna áherslu á umfjöllun um neyt­enda­mál. Bens­ín­vaktin er fyrsta skrefið sem Kjarn­inn stígur til að bregð­ast við þeim ábend­ing­um. 

Fyrir áhuga­fólk um elds­neyt­is­mark­að­inn og sam­keppn­is­að­stæður á honum er einnig rétt að benda á að opin fund Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um mál­efnið sem fram fer á morg­un, 20. sept­em­ber klukkan 9:00 í Hörpu. Fund­ur­inn er hald­inn í tengslum við mark­aðs­rann­sókn eft­ir­lits­ins á elds­neyt­is­mark­aðn­um. Þar verður fjallað um sam­keppni á erlendum elds­neyt­is­mörk­uðum auk þess sem pall­borðsum­ræður verða um sam­keppn­is­að­stæður á þeim íslenska. Frek­ari upp­lýs­ingar um fund­inn og mark­aðs­rann­sókn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins er hægt að finna hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None