Segir RÚV sigurvegara formannskosninga í Framsókn

Davíð Sigmundur RÚV
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugsson var í gær felldur sem for­ingi Fram­sókn­ar­flokks­ins. Aðal­sig­ur­veg­ar­inn var „RÚV“ sem staðið hefur fyrir her­ferð gegn Sig­mundi. Hinn var Sig­urður Ing­i.“ Þetta skrifar leið­ara­höf­undur Morg­un­blaðs­ins í dag. Rit­stjórar Morg­un­blaðs­ins eru Davíð Odds­son, sem skrifar flesta leið­ara blaðs­ins, og Har­aldur Jóhann­es­sen.

Sig­mundur Davíð tap­aði í gær for­manns­kosn­ingu í Fram­sókn­ar­flokknum fyrir Sig­urði Inga Jóhanns­syni for­sæt­is­ráð­herra. Morg­un­blaðið hefur í rit­stjórn­ar­greinum sínum ítrekað tekið undir þann mál­flutn­ing Sig­mundar Dav­íðs að Wintris-­málið svo­kall­aða, sem varð til þess að hann sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra í apr­íl, hefði verið þaul­skipu­lögð árás. Í leið­ara blaðs­ins sama dag og Sig­mundur Davíð sagði af sér, 5. apríl 2016, sagði m.a. um Kast­ljós­þátt­inn sem sýndur hafði verið tveimur dögum áður, og inni­hélt við­tal sænsks frétta­manns við þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra þar sem hann var spurður út í aflandseign sína, að skyndi­lega hafi runnið upp fyrir Sig­mundi Davíð að hann væri „fórn­ar­lamb ósvíf­ins blekk­inga­leiks. Honum hafði í raun­inni verið veitt fyr­ir­sát og hann gengið í gildru.“

Þessi skoðun leið­ara­höf­unda Morg­un­blaðs­ins hefur síðar margoft verið end­ur­tekin í skrifum þeirra.

Auglýsing

Davíð skældi ekki yfir ræðu­tíma

Í leið­ara dags­ins er einnig sett fram gagn­rýni á Sig­urð Inga og þá full­yrð­ingu að hann hafi staðið sig vel sem for­sæt­is­ráð­herra. „Það mun helst hafa verið eftir að til­kynnt var um haust­kosn­ingar og ríkisstjórnin breytti sjálfri sér í starfs­stjórn. Það gæti farið vel á því að stjórn­mála­fræð­ingar háskól­anna könn­uðu nú hver af þeim 29 mönn­um, sem gegnt hafa emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra á Íslandi, hafi staðið sig best sum­ar­mán­uð­ina á valda­skeið­in­u. Þótt þessi sum­ar­a­frek Sig­urðar Inga, sem gott væri að fá nán­ari fréttir af, hafi hjálpað honum til að leggja Sig­mund, þá dró þó drýgst að kveinka sér undan því að fá aðeins 15 mín­útna ræðu­tíma en for­maður hefði talað í 60. Árið 1991 fór fram kosn­ing um for­mann í öðrum flokki og for­mað­ur­inn þar tal­aði svo sem í hefð­bund­inn klukku­tíma og áskor­and­inn kannski fimmt­ung af því. Sá hafði ekki rænu á að skæla yfir því, enda var farið eftir leik­regl­um, rétt eins og hjá Fram­sókn nú.“

Kosn­ing­arnar sem leið­ara­höf­undur vísar í eru for­manns­kosn­ingar í Sjálf­stæð­is­flokknum 1991 þegar þáver­andi borg­ar­stjóri í Reykja­vík, Davíð Odds­son, bauð sig fram gegn sitj­andi for­manni Þor­steini Páls­syni og hafði sig­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None