Lögmenn dæmdra í markaðsmisnotkunarmáli fá yfir 300 milljónir króna

Sléttum átta árum frá því neyðarlög voru sett var kveðinn upp dómur í stóra markaðsmisnotkunarmáli Kaupþings. Allir níu ákærðu voru sakfelldir.

img_2961_raw_1807130226_10016478853_o.jpg
Auglýsing

Lög­menn þeirra níu fyrr­ver­andi starfs­manna Kaup­þings, sem dæmd­ir voru sekir í stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings í gær, fá sam­tals 337,3 millj­ónir króna í málsvarn­ar­laun vegna máls­ins, sem er með umfangs­mestu mál­u­m ­sem komið hafa inn á borð dóm­stóla vegna hruns fjár­mála­kerf­is­ins, dag­ana 7. til­ 9. októ­ber 2008. Vegna mál­rekstrar í hér­aði greið­ast 262,6 millj­ónir en í Hæsta­rétti 74,7 millj­ón­ir.

Ingólfur Helga­­­son hlaut þyngstan dóm í mál­in­u, ­fjög­­­urra og hálfs árs fang­elsi. Bjarki H. Diego hlaut tveggja og hálfs árs dóm, Einar Pálmi Sig­­munds­­son tveggja ára skil­orðs­bund­inn dóm og Birnir Sær Björns­­son og Pétur Krist­inn Guð­mar­s­­son ­fengu báðir 18 mán­aða skil­orðs­bund­inn dóm. Sig­­­urður Ein­­­ar­s­­­son fékk eins árs hegn­ing­­­ar­auka við þann fjög­­­urra ára dóm sem hann hlaut í Al Than­i-­­­mál­in­u. Magn­úsi Guð­­munds­­syni og Björk Þór­­ar­ins­dótt­ur var ekki gerð sér­­­stök refs­ing fyrir þau brot sem þau voru dæmd fyr­­ir. Dóm Hæsta­réttar má lesa hér.

Refs­ing Hreið­­ars Más Sig­­urðs­­son­­ar, fyrr­ver­and­i ­for­­stjóra Kaup­­þings, var þyngd og honum gerður sex mán­aða hegn­ing­­ar­­auki.

Auglýsing

Allir níu í markaðsmisnotkunarmáli Kaupþings voru sakfelldir í Hæstarétti.

Hæstu málsvar­launin komu í hlut Harðar Felix Harð­ar­son­ar, lög­manns Hreið­ars Más Sig­urðs­son­ar, en honum voru dæmdar 47,9 millj­ónir króna í málsvarn­ar­laun í hér­aði. Vegna mál­rekstrar í Hæsta­rétti greið­ast 12,9 millj­ónir og greið­ast það allt úr vasa Hreið­ars Más. Málsvarn­ar­laun Harðar eru því rúm­lega 60 millj­ónir vegna máls­ins.

Lög­maður Sig­urðar Ein­ars­son­ar, Gestur Jóns­son, fær 35,1 millj­ón króna í málsvarn­ar­laun vegna mála­rekstrar í hér­aði. Vegna máls­ins í Hæsta­rétti greiðir Sig­urður Gesti 6,4 millj­ónir króna. 

Lög­maður Ing­ólfs Helga­son­ar, Grímur Sig­urðs­son, fær 41,2 millj­ón­ir króna vegna mála­rekstrar í hér­aði. Vegna máls­ins í Hæsta­rétti þarf Ingólfur að greiða Grími 16,6 millj­ónir króna, og því sam­tals 57,8 millj­ónir króna.

Málsvarn­ar­laun Krist­ínar Edwald, lög­manns Magn­úsar Guð­munds­son­ar, voru 19,8 millj­ónir og áttu þau að greið­ast að öllu leyti úr rík­is­sjóði, sam­kvæmt dómi hér­aðs­dóms. Það sama átti við um málsvarn­ar­laun Hall­dórs Jóns­son­ar, lög­manns Bjark­ar Þór­ar­ins­dótt­ur, en málsvarn­ar­laun hans vegna máls­ins í hér­aði eru 10,7 millj­ónir króna. 

Í dómi Hæsta­réttar var þessu breytt og þurfa Magnús og Björk að greiða fjórð­ung málsvarn­ar­launa úr eigin vasa, Magnús 4,9 millj­ónir en Björk 2,6 millj­ón­ir. 

Vegna mála­rekstrar í Hæsta­rétti þurfa þau að greiða fjórð­ung af launum verj­enda sinna. Magnús 2,5 millj­ónir til Krist­ínar og Björk 1,4 millj­ónir til Helgu Mel­korku Ótt­ars­dótt­ur. Úr rík­is­sjóði fær Kristín 7,5 millj­ónir og Helga Mel­korka fær 4,1 millj­ón.

Lög­maður Bjarka Diego, Jóhannes Sig­urðs­son, fær 25,2 millj­ón­ir króna í málsvarn­ar­laun vegna máls­ins í hér­aði og 5,5 millj­ónir vegna mála­rekstrar í Hæsta­rétti.

Aðrir ákærðu í mál­inu, Einar Pálmi, Birnir Sær og Pétur Krist­inn, þurfa að greiða sínum lög­mönnum sam­tals 63,8 millj­ónir vegna máls­ins í hér­aði. Málsvarn­ar­laun Gizur­ar Berg­steins­son­ar, lög­manns Ein­ars Pálma, eru 14,6 millj­ón­ir, og lög­menn Birn­is ­Sæs og Pét­urs Krist­ins, Hall­dór Jóns­son og Víf­ill Harð­ar­son, fá 24,6 millj­ón­ir króna hvor í málsvarn­ar­laun.

Vegna mála­rekstrar í Hæsta­rétti þarf Einar Pálmi að greiða Giz­uri 5,3 millj­ón­ir, Birnir Sær þarf að greiða Hall­dóri 6,3 millj­ónir og Pétur Krist­inn Vífli 6,2 millj­ón­ir.

Til­ við­bótar þessu fékk Brynjar Níels­son, lög­maður og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, 1,6 millj­ónir króna í málsvarn­ar­laun vegna vinnu fyrir Bjarka Diego á rann­sókn­ar­stigi máls­ins, en Bjarki þarf að greiða honum þau laun að fullu sjálf­ur, sam­kvæmt dómi hér­aðs­dóms.

Annan áfrýj­un­ar­kostn­að, 3,5 millj­ónir króna, skulu ákærðu greiða óskipt, en ákærðu Magnús og Björk þó að fjórð­ungi hvort, að því er segir í dómi Hæsta­rétt­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None