Bætur hækkaðar í 300 þúsund og frítekjumark sett á

ingsetning-hausti-2015_21254474436_o.jpg
Auglýsing

Rík­is­stjórn Íslands leggur til breyt­ingar á almanna­trygg­inga­frum­varp­inu sem liggur fyrir Alþingi, á þann hátt að líf­eyr­is­greiðslur bæði aldr­aðra og öryrkja hækki í 280 þús­und krónur um ára­mótin og 300 þús­und krónur frá árs­byrjun 2018. 

Þá verði sett á frí­tekju­mark á allar tekjur eldri borg­ara, sem verði 25 þús­und krón­ur. 

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá rík­is­stjórn­inni, en þar segir að ákvörð­unin hafi verið tekin á fundi rík­is­stjórn­ar­innar í dag, í kjöl­far ábend­inga um frum­varp­ið. Það hefur verið harð­lega gagn­rýnt, ekki síst þessi atriði sem nú á að breyta. 

Auglýsing

Í umræðu um frum­varpið hafa komið fram gagn­legar ábend­ingar um stöðu eldri borg­ara og ýmis atriði sem betur mættu fara í frum­varp­in­u,“ segir í til­kynn­ing­unni. „Skoðuð hafa verið áhrif auk­inna fram­laga til almanna­trygg­inga á stöðu rík­is­fjár­mála til skemmri og lengri tíma. Að lok­inni þeirri athugun telur rík­is­stjórn­in, í ljósi ábyrgrar efna­hags­stjórn­unar og þess mikla árang­urs sem náðst hefur á kjör­tíma­bil­inu í rík­is­fjár­mál­um, að unnt sé að stíga veiga­mikil skref til bættra kjara aldr­aðra og öryrkja. Bygg­ist það á sterkri stöðu þjóð­ar­bús­ins og jákvæðum fram­tíð­ar­horf­um.“ 

Því verði eldri borg­urum sem haldi einir heim­ili tryggðar 300 þús­und krónur á mán­uði frá ára­mótum 2018, enda hafi þeir ekki aðrar tekjur sem hafa áhrif á fjár­hæð bót­anna. Bæt­urnar eiga að hækka í 280 þús­und nú um ára­mót­in. Sama gildir um bætur til öryrkja. 

Þá verður sett frí­tekju­mark á allar tekjur eldri borg­ara, líf­eyr­is­sjóðs­tekj­ur, atvinnu­tekjur eða fjár­magnstekj­ur. Þetta verður und­an­þegið útreikn­ingi bóta og verður 25 þús­und krón­ur. 

Hækkun líf­eyr­i­s­töku­ald­urs verður svo hraðað um 12 ár þannig að hækkun lág­marks­líf­eyr­i­s­töku­ald­urs fer úr 67 árum í 70 á 12 árum en ekki 24 árum. 

Stjórn­völd segja að þetta muni hækka bætur almanna­trygg­inga mikið á næstu tveimur árum. Árlegur kostn­aður við þetta eru 4,5 millj­arðar króna til við­bótar við 5 til 5,5 millj­arða sem áður var búið að reikna með öðrum breyt­ingum á almanna­trygg­inga­kerf­in­u. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None