Katrín Jakobsdóttir
Auglýsing

Enn bólar ekk­ert á skýrslu frá Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra um frek­ari upp­lýs­ingar um það hvernig Leið­rétt­ingin svo­kall­aða skipt­ist á milli fólks, þrátt fyrir að meira en ár sé liðið frá því að níu stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn lögðu fram beiðni um skýrsl­una. Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri-grænna, vakti athygli á þessu á þingi í morg­un. 

Þessar upp­lýs­ingar hljóta að liggja fyrir og hæstv. ráð­herra gerði þá betur í því að skila bara auðu og segja að hann hafi ekki upp­lýs­ing­arnar ef hann hefur þær ekki. Þetta á auð­vitað að vera löngu kom­ið, herra for­seti. Þetta er ekki boð­leg­t,“ sagði Katrín. Hún sagði að henni hefði verið sagt að rekið hafi verið eftir skýrsl­unni í ráðu­neyt­inu. „Ég fer nú að velta því fyrir mér hvernig hæst­virtir ráð­herrar ætla að sinna skyldum sínum gagn­vart þing­inu þegar þeir kom­ast upp með það í heilt ár að svara ekki skýrslu­beiðni frá níu þing­mönnum úr öllum stjórn­ar­and­stöðu­flokk­un­um.“ 

Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþing­is, sagð­ist ætla að kanna hvernig á þessu stæði og hvers vegna skýrslan væri ekki komin til Alþing­is.

Auglýsing

Oddný Harð­ar­dótt­ir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, tók undir með Katrínu og sagði vinnu­brögðin í mál­inu til hábor­innar skammar, að það skuli drag­ast í heilt ár að bregð­ast við skýrslu­beiðni um stærsta kosn­inga­lof­orð­ið. „Maður spyr sig þá hvort þarna séu spurn­ingar sem hæstv. fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra treysti sér ekki til þess að upp­lýsa um svörin við. Þarna er spurt um tekj­ur, eign­ir, hverjir fengu nið­ur­greiðsl­una. Er það ekki einmitt eins og bent hefur verið á að þarna var ríku fólki rétt rík­isfé og stuðn­ing­ur? Ég leyfi mér að full­yrða að þess vegna sé skýrslan ekki komin fram. Meðan ég fæ ekki aðrar skýr­ingar held ég mig við þessa.“ 

Vilja upp­lýs­ingar um skipt­ingu 80 millj­arða

Skýrslu­beiðnin var sam­þykkt fyrir ári síð­an, eftir að fyrri skýrsla Bjarna um málið þótti ekki svara öllum spurn­ingum sem hún átti að ger­a. 

Þing­­­menn­irnir fóru meðal ann­­­ars fram á að fá að vita hvernig heild­­­ar­­­upp­­­hæð leið­rétt­ing­­­ar­inn­­­ar, um 80,4 millj­­­örðum króna, skipt­ist eftir tekjum á milli allra fram­telj­enda árið 2014, hvort sem þeir nutu lækk­­­unar eða ekki og hvernig heild­­­ar­­­upp­­­hæðin dreif­ist á milli allra fram­telj­enda eftir hreinum eign­­­um.

Í grein­­­ar­­­gerð sem fylgdi beiðn­­­inni segir að Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­­maður Vinstri grænna, hafi lagt fram fyr­ir­­­spurn í 15 liðum um nið­­­ur­­­færslu verð­­­tryggðra fast­­­eigna­lána 11. nóv­­­em­ber 2014. Þar segir enn­frem­­­ur: „Tæpum mán­uði seinna barst „svar“ fjár­­­­­mála- og efna­hags­ráð­herra þar sem engri spurn­ingu var svarað efn­is­­­lega en svörum lofað á vor­­­þingi með fram­lagn­ingu sér­­­stakrar skýrslu ráð­herra um aðgerð­ina. Málið olli nokkru upp­­­­­námi á Alþingi og svar­aði ráð­herra í kjöl­farið fimm af 15 spurn­ingum þing­­­manns­ins 29. jan­ú­­­ar. Beðið var eftir frek­­­ari svörum í fimm mán­uði til við­­­bótar og 29. júní sl. birti fjár­­­­­mála- og efna­hags­ráð­herra svo loks skýrslu sína um lækkun höf­uð­stóls verð­­­tryggðra hús­næð­is­veð­lána (809. mál). ­Skýrslan svarar því miður ekki öllum þeim spurn­ingum sem settar voru fram í fyr­ir­­spurn Katrínar Jak­obs­dóttur tæpum átta mán­uðum áður. Sér­­­stak­­­lega vantar svör við 1., 2. og 3. tölul. fyr­ir­­­spurn­­­ar­innar og er hér leit­­­ast við að fá loks­ins svör við þessum spurn­ing­­­um. Að auki er farið fram á upp­­­lýs­ingar um hlut­­­fall skulda­n­ið­­­ur­­­færsl­unnar eftir eigna­­­stöðu og eftir tekjum miðað við árið 2014, en upp­­­lýs­ingar þar að lút­­­andi ættu nú í sumar að geta verið unnar úr skatt­fram­­­tölum fyrir það ár.“

Spurn­ing­­­arnar fimm sem stjórn­­­­­ar­and­­­stöð­u­­­þing­­­menn­irnir vilja fá svör við eru eft­ir­far­andi:

  1. Hvernig skipt­ist heild­­­ar­­­upp­­­hæð þeirrar fjár­­­hæðar sem varið hefur verið til lækk­­­unar verð­­­tryggðra fast­­­eigna­veð­lána ein­stak­l­inga milli beinnar höf­uð­stólslækk­­­unar á fast­­­eigna­veð­lánum ein­stak­l­inga og frá­­­­­drátt­­­ar­liða, svo sem fast­­­eigna­veð­krafna án veð­­­trygg­inga, van­skila og greiðslu­­­jöfn­un­­­ar­­­reikn­inga?
  2. Hverjir eru frá­­­­­drátt­­­ar­lið­irnir og hver er skipt­ingin milli þeirra í krónum talið?
  3. Hvert er heild­­­ar­hlut­­­fall beinnar höf­uð­stólslækk­­­un­­­ar, þ.e. lækk­­­unar höf­uð­stóls að und­an­­­skildum frá­­­­­drátt­­­ar­lið­um, af verð­­­tryggðum fast­­­eigna­veð­lán­um?
  4. Hvernig dreif­ist heild­­­ar­­­upp­­­hæðin sem varið hefur verið til lækk­­­unar verð­­­tryggðra hús­næð­is­lána eftir tekjum á milli allra fram­telj­enda árið 2014, hvort sem þeir nutu lækk­­­unar eða ekki? Hvert er hlut­­­fall heild­­­ar­­­upp­­­hæð­­­ar­innar sem skipt­ist niður á tekju­bil hvers tíunda hluta fyrir sig, miðað við eignir á árinu 2014? Hver er fjöldi fram­telj­enda á bak við hvert tekju­bil?
  5. Hvernig dreif­ist heild­­­ar­­­upp­­­hæðin sem varið hefur verið til lækk­­­unar verð­­­tryggðra hús­næð­is­lána á milli allra fram­telj­enda árið 2014 eftir hreinum eign­um, þ.e. eignum umfram skuld­ir? Hvert er hlut­­­fall heild­­­ar­­­upp­­­hæð­­­ar­innar sem skipt­ist niður á eigna­bil hvers tíunda hluta fyrir sig, miðað við eignir á árinu 2014? Hver er fjöldi fram­telj­enda á bak við hvert eigna­bil?

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None