Þingflokksformenn allra flokka á Alþingi stóðu saman og kvöddu Einar K. Guðfinnsson, forseta Alþingis, við lok þingfundar.
Þingflokksformenn allra flokka á Alþingi stóðu saman og kvöddu Einar K. Guðfinnsson, forseta Alþingis, við lok þingfundar.
Auglýsing

Alþingi hefur verið slitið og nýtt þing kemur saman á nýju kjör­tíma­bili að loknum kosn­ing­um. Á síð­asta degi þings­ins voru sam­þykkt lög um aðgerðir stjórn­valda gegn skattsvik­um, fast­eigna­lán til neyt­enda, stofnun milli­dóm­stigs, Græn­lands­sjóð og breyt­ingar á útlend­inga­lög­um. 

Síð­asta þing­málið sem var sam­þykkt á þessu þingi var þings­á­lykt­un­ar­til­laga um það hvernig skuli fagna ald­ar­af­mæli sjálf­stæðis og full­veldis Íslands. Til­lagan var sam­þykkt með 56 sam­hljóða atkvæð­u­m. 

Meðal mála sem ekki voru afgreidd á þing­inu voru LÍN-frum­varp­ið, breyt­ingar á líf­eyr­is­málum og breyt­ingar á lögum um vexti og verð­trygg­ing­u. 

Auglýsing

Þing­ið, sem nú er að ljúka, er óvenju­legt að mörgu leyti, sagði Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþing­is. Þetta var lengsta þingið í þing­funda­dögum talið, 147 dagar fóru í þing­hald. Aldrei hafa ráð­herrar svarað eins mörgum óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum og á þessu þingi. Bara einu sinni áður hafa verið fleiri sér­stakar umræður á einu þingi. 107 frum­vörp urðu að lögum á þessu þingi og aldrei áður hafa eins margar þings­á­lykt­un­ar­til­lögur verið sam­þykktar og á þessu ári, 72 tals­ins. Hann sagði því ljóst að þingið hefði verið athafna­sam­t. 

Einar beindi orðum sínum til ungs fólks og bað það fólk sem áhuga hefði á því, að sækj­ast eftir störfum á Alþingi. Hann sagði sann­ar­lega margt gagn­rýni­vert við störf þings­ins, og að það hafi verið honum von­brigði að ekki hafi verið hægt að breyta þing­sköp­um. 

Einar er einn þeirra fjöl­mörgu þing­manna sem hætta nú störfum á Alþingi. Fjöldi þing­manna hefur í dag og und­an­farna daga nýtt tæki­færið til að kveðja Alþingi úr ræðu­stól. Einar minnt­ist á alla þing­menn­ina sem ætla nú að hætta og þakk­aði fyrir sam­starf­ið, auk þess sem hann minnt­ist tveggja þing­manna sem féllu frá á kjör­tíma­bil­inu, þeirra Pét­urs Blön­dal og Guð­bjarts Hann­es­son­ar. Hann þakk­aði öllum þing­mönnum og starfs­fólki Alþingis fyrir sam­starf, auk þess sem hann þakk­aði fjöl­miðla­fólki. 

Að lok­inni ræðu Ein­ars hélt Svan­dís Svav­ars­dótt­ir, þing­flokks­for­maður Vinstri-grænna, ræðu til að kveðja Einar sem þing­for­seta. Við hlið hennar stóðu þing­flokks­for­menn allra þing­flokka. „Al­þingi er hjartað í lýð­ræð­inu á Ísland­i,“ sagði hún. „Við þurfum að standa með þing­ræð­inu, sem er gott stjórn­ar­form, það er oft sein­legt og vesen finnst okk­ur, en það er ekk­ert betra til­.“ 

Hún sagði einnig að Einar hefði með sinni fram­göngu sem for­seti stuðlað að því að auka virð­ingu Alþing­is. Hún þakk­aði honum fyrir störf sín og sam­starf­ið, og afhenti honum blóm­vönd frá þing­mönn­um. Að lokum stóðu allir þing­menn úr sætum sínum til að taka undir orð henn­ar. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None