Mál gegn Hannesi Smárasyni fellt niður vegna klúðurs

hannes smárason Hannes
Auglýsing

Hæsti­réttur felldi í dag niður mál sér­staks sak­sókn­ara gegn Hann­esi Smára­syni í hinu svo­kall­aða Sterl­ing-­máli. Ástæðan er seina­gangur hjá  ríkissak­sókn­ara, sem skil­aði ekki grein­ar­gerð í mál­inu fyrr en eftir að frestur til þess var lið­inn. Samt hafði verið veittur auka­frestur til þess að skila grein­ar­gerð. Hannes hafði verið sýkn­aður í mál­inu í hér­aðs­dómi. 

Þegar máls­gögnin bár­ust Hæsta­rétti voru meira en ell­efu ár liðin frá ætl­uðu broti, nærri átta ár frá upp­hafi rann­sóknar og rúmir sautján mán­uðir frá því að rík­is­sak­sókn­ari gaf út á­frýj­un­ar­stefnu til að fá hnekkt hér­aðs­dómi um sýkn­u. „Ákæru­valdið hefur ekki veitt hald­bærar skýr­ingar á því hvers vegna það tók svo langan tíma að útbúa máls­gögn og skila þeim til Hæsta­rétt­ar. Þegar máls­gögnin loks bár­ust rétt­inum voru liðin meira en ell­efu ár frá ætl­uðu broti, nærri átta ár frá upp­hafi rann­sóknar og rúmir sautján mán­uðir frá því að rík­is­sak­sókn­ari gaf út áfrýj­un­ar­stefnu til að fá hnekkt hér­aðs­dómi um sýknu ákærða. Þessar gíf­ur­legu og óút­skýrðu tafir á mál­inu gáfu enn rík­ari ástæðu en endranær til þess að rekstur máls­ins færi ekki frekar úr skorðum hvað máls­hraða varð­ar,“ segir í dómi Hæsta­rétt­ar.

Hannes var í lok októ­ber 2013 ákærður fyrir fjár­­­drátt fyrir að láta milli­­­færa tæp­­lega þrjá millj­­arða króna af banka­­reikn­ingi FL Group í úti­­­búi Danske Bank í New York og inn á nýjan banka­­reikn­ing FL Group hjá Kaup­­þingi í Lúx­em­­borg sem Hannes hafði látið stofna fimm dögum áður. Sam­­kvæmt sér­­­stöku umboði hafði Hannes fullt og ótak­­markað umboð til ráð­staf­ana á fjár­­munum félags­­ins á þeim banka­­reikn­ing.

Auglýsing

Fjár­­mun­irnir voru sama dag færðir frá nýja banka­­reikn­ingnum yfir á banka­­reikn­ing Fons eign­­ar­halds­­­fé­lags, í eigu Pálma Har­alds­­sonar og Jóhann­esar Krist­ins­­son­­ar. Þar var fjár­­hæð­inni skipt í danskar krónur og í kjöl­farið lagðar inn á félagið Fred. Olsen & Co., þáver­andi eig­anda flug­­­fé­lags­ins Sterl­ing Air­lines. Millj­­arð­­arnir þrír mynd­uðu því stóran hluta af þeim fjórum millj­­örðum króna sem Fons greiddi fyrir kaup á Sterl­ing á þessum tíma.

Á þessum tíma var FL Group almenn­ings­hluta­fé­lag í eigu rúm­lega fjögur þús­und aðila. 

Á meðal þeirra gagna sem lágu til grund­vallar ákærunni eru gögn frá Lúx­em­­borg sem sýndu að fé FL Group hafi ratað inn á reikn­ing Fons. Það fé var síðan notað til að kaupa Sterl­ing. Þess­­ara gagna var aflað með rétt­­ar­beiðni frá Lúx­em­­borg og vegna þeirra var Hannes aðal­­­lega ákærður fyrir fjár­­­drátt, en til vara fyrir umboðs­­svik. 

Mál­inu var vísað frá hér­­aðs­­dómi í mars 2014 með þeim rökum að hátt­­semin sem Hann­esi var gefin að sök í ákærunni hafi ekki verið lýst með full­nægj­andi hætti. Sér­­stakur sak­­sókn­­ari áfrýj­aði nið­­ur­­stöð­unni til Hæsta­réttar felldi úrskurð hér­­aðs­­dóms og lagði fyrir hér­­aðs­­dóm að taka málið til efn­is­­með­­­ferð­­ar. Hann var svo sýkn­aður í hér­aðs­dómi sem fyrr seg­ir. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None