Verðandi mæður fresta komu barna til að fá hærra fæðingarorlof

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra.
Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra.
Auglýsing

Dæmi eru um að verð­andi mæður sem áttu að fara í gang­setn­ingu til að koma fæð­ingu af stað hafi frestað fæð­ing­unum fram yfir 15. októ­ber. Ástæðan er sú að þá tekur ný reglu­ferð um fæð­ing­ar­or­lofs­greiðslur gildi sem hækkar hámarks­greiðslu í orlof­inu úr 370 þús­und krónum í 500 þús­und krónur á mán­uði. Mikil ólga er í verð­andi for­eldrum vegna stöð­unn­ar. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Þar er rætt við tvær verð­andi mæður sem eru langt gengn­ar. Önnur þeirra, Hildur Guð­munds­dótt­ir, er gengin 38 vikur og seg­ist vona inni­lega að hún fari ekki af stað fyrir 15. októ­ber, sem er á laug­ar­dag. Það geti skipt hana hund­ruðum þús­unda króna hvort hún eign­ist barn sitt fyrir þann tíma sem reglu­gerðin tekur gildi eða eft­ir. Í blað­inu er einnig rætt við Evu Rós Ólafs­dóttur sem átti að fara í gang­setn­ingu á morg­un, 14. októ­ber. Hún hefur nú frestað henni fram yfir helgi í sam­ráði við lækni af fjár­hags­legum ástæð­um. Bæði hafi það mikil fjár­hags­leg áhrif á fjöl­skyldu hennar að fá hærri fæð­ing­ar­or­lofs­greiðslur og haft áhrif á hvort faðir barns­ins geti tekið fullt fæð­ing­ar­or­lof.

Til­kynnt um hækkun fyrir viku síðan

Til­kynnt var um það síð­ast­lið­inn föstu­dag að fæð­ing­­ar­or­lofs­greiðslur verða hækk­­aðar í 500 þús­und krónur frá og með 15. októ­ber næst­kom­andi. Þetta var sam­­þykkt á fundi rík­­is­­stjórn­­­ar­innar þann dag, að til­­lögu Eyglóar Harð­­ar­dóttur félags- og hús­næð­is­­mála­ráð­herra. 

Auglýsing

Hámarks­­greiðslur í fæð­ing­­ar­or­lofi eru nú 370 þús­und krón­­ur, en verða hækk­­aðar í 500 þús­und krónur sem fyrr seg­­ir. Fæð­ing­­ar­­styrkur og lág­­marks­greiðslur í fæð­ing­­ar­or­lofi hækka einnig. 

Eygló hafði áður áformað að leggja fram frum­varp til breyt­inga á lögum um fæð­ing­­ar­or­lof, sem byggði á til­­lögum starfs­hóps sem hún skip­aði árið 2014 til að móta fram­­tíð­­ar­­stefnu stjórn­­­valda í þessum mál­­um. Sam­­kvæmt því frum­varpi átti að hækka hámarks­­greiðslur í 600 þús­und krón­­ur, auk þess sem lengja átti fæð­ing­­ar­or­lofið í áföng­­um. Þá liggur fyrir frum­varp inni í þing­inu frá þing­­flokki Sam­­fylk­ing­­ar­innar þar sem lagt er til að hámarks­­greiðslur hækki í 500 þús­und krón­­ur, auk þess sem fæð­ing­­ar­or­lof yrði lengt í áföng­­um. Það frum­varp hefur verið í vel­­ferð­­ar­­nefnd þings­ins frá því í mar­s. 

Kveðið verður á um þessar hækk­­­anir með reglu­­gerð, en ekki með lögum frá Alþingi eins og venjan er. Breyt­ing­­arnar eiga að taka gildi 15. októ­ber og gildir aðeins um for­eldra barna sem fæðast, verða ætt­­­leidd eða tekin í var­an­­legt fóstur þann dag eða síð­­­ar. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None