Sigmundur hnýtir í RÚV vegna tölvuinnbrots

sigmundur david
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, gagn­rýnir frétta­flutn­ing RÚV af meintu tölvu­inn­broti í tölvu hans á meðan hann var for­sæt­is­ráð­herra. Hann seg­ist hafa hlegið upp­hátt þegar hann sá fyr­ir­sögn RÚV um mál­ið, en fyr­ir­sögnin var „Vildi ekki láta skipta um disk sýktu tölv­unn­ar.“

Þetta segir Sig­mundur í færslu á Face­book-­síðu sinni að sé merki um að RÚV sé að gefa í skyn að honum hafi „bara þótt ljóm­andi gott að vera með sýkta tölvu eða ekki talið trú­verð­ugt að brot­ist hafi verið inn í tölv­una (e.t.v. talið að slíkt tal væri nú bara eins og upp úr vís­inda­skáld­sög­u). Hvað kemur næst? Ég bíð spennt­ur. Raunin var sú að ég var ekki mót­fall­inn því að fá vírus­lausa tölvu. Ég þurfti hins vegar að nota gögn úr tölv­unni svo það varð að bíða. Tölvan var því aftengd inter­net­inu og loks tekið af henni raf­magn til örygg­is­.“ 

Frétt RÚV frá því í morgun byggir á gögnum frá Rík­is­lög­reglu­stjóra um mál­ið, meðal ann­ars minn­is­blaði frá rekstr­ar­fé­lagi Stjórn­ar­ráðs­ins. Í því minn­is­blaði kemur fram að starfs­menn hafi bent Sig­mundi Davíð á að rétt væri að skipta um disk tölv­unnar og setja stýri­kerfi upp að nýju. „Ráð­herra vildi ekki að það yrði gert,“ segir orð­rétt í minn­is­blað­inu sam­kvæmt frétt RÚV. 

Auglýsing

Það vakti mikla athygli þegar Sig­mundur Dav­íð, þá for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sagði í ræðu á mið­stjórn­ar­fundi flokks­ins þann 10. sept­em­ber síð­ast­lið­inn að brot­ist hafi verið inn í tölv­una hans. Hann hafi látið yfir­fara tölv­una hjá rekstr­ar­fé­lagi stjórn­ar­ráðs­ins og þar hafi fund­ist ummerki um inn­brot. Rekstr­ar­fé­lagið sagði hins vegar í svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans þann 12. sept­em­ber að engin stað­fest ummerki hafi fund­ist um inn­brot. Óskað hafi verið eftir því við rekstr­ar­fé­lagið þann 1. apríl að tölvan yrði skoð­uð. Við ítar­lega leit hafi ekki fund­ist stað­fest ummerki um inn­brot. 

„Ekki fannst stað­fest­ing á því að umrædd vél hafi verið sýkt og né aðrar vélar á þeim tíma á okkar stað­ar­neti af þeirri veiru sem hér um ræð­ir. Ólík­legt þykir að sýk­ing hafi átt sér stað þar sem Sig­mundur Davíð sem og aðrir not­endur hafa tak­mörkuð rétt­indi á sínar vél­ar,“ segir einnig í minn­is­blaði rekstr­ar­fé­lags­ins um mál­ið, sem RÚV greinir frá í dag. 

Sig­mundur Davíð birti bréf á Face­book-­síðu sinni í gær frá rík­is­lög­reglu­stjóra. Þar segir Sig­mundur að „Fram kemur að tölvu­póstur sem sendur var á mig og lát­inn líta út fyrir að hann hefði komið frá öðrum en þeim sem sendi hann hefði lík­lega inni­haldið þekkta tölvu­veiru að nafni „Poi­son Ivy back­door“. Um þá veiru segir í bréfi frá RFS: „Ein­kenni hennar eru þær að hún opnar bak­dyr inn á tölvu við­kom­andi fyrir aðgengi árás­ar­að­ila að tölv­unn­i“. Þótt veiran hafi ekki fund­ist í tölv­unni er tekið fram að „Al­gengt er með slíka veirur að árás­ar­að­il­inn hreinsar til eftir sjálfan sig að lok­inni aðgerð“. Atvikið var skráð sem örygg­is­at­vik hjá RFS.“ 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None