Íslendingar hafa miklar áhyggjur af plastmengun, súrnun og hærra hitastigi sjávar

Meirihluti Íslendinga hefur miklar áhyggjur af umhverfisáhrifum í hafinu. Kjósendur Sjálfstæðisflokksins hafa minnstar áhyggjur en kjósendur Vinstri-grænna mestar áhyggjur.

Reykjavíkurhöfn
Auglýsing

Ríf­lega 80 pró­sent Íslend­inga hafa miklar áhyggjur af plast­mengun í haf­inu, sam­kvæmt nýrri skoð­ana­könnun sem Gallup gerði fyrir Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök Íslands. 68,5 pró­sent hafa miklar áhyggjur af hækkun á hita­stigi hafs­ins og 66 pró­sent hafa miklar áhyggjur af súrnun hafs­ins. 

Nátt­úru­vernd­ar­sam­tökin segja nið­ur­stöð­urnar áhuga­verðar í ljósi þess að Ísland hafi enn ekki mótað neina sam­hæfða stefnu um það hvernig eigi að vernda líf­ríki hafs­ins gegn hnatt­rænum umhverf­isógnum eins og súrnun hafs, plast­mengun og hækk­andi hita­stig­i. 

Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins höfðu í öllum til­vikum minnstar áhyggjur en kjós­endur VG mestar áhyggj­ur. 

Auglýsing

Mestar áhyggjur af plast­mengun í hafi

Yfir 80 pró­sent aðspurðra hafa frekar eða mjög miklar áhyggjur af plast­mengun í sjón­um, líkt og fyrr seg­ir. 10,4 pró­sent aðspurðra sögð­ust hafa litlar eða engar áhyggjur af plast­mengun í haf­inu, og rúm­lega níu pró­sent sögð­ust hvorki hafa miklar né litlar áhyggjur af meng­un­inni. Mark­tækur munur var á svörum fólks eftir því hvar á land­inu það býr, eftir menntun þess og eftir því hvaða stjórn­mála­flokk það hyggst kjós­a. 

Þannig hafa 82% íbúa Reykja­víkur miklar áhyggjur af plast­meng­un­inni, 84% íbúa í nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­inn­ar, en 75% íbúa í öðrum sveit­ar­fé­lög­um. Þá hafa 80% þeirra sem eru með grunn­skóla­próf miklar áhyggj­ur, 79% þeirra sem hafa við­bót við grunn­skóla­próf og 85% þeirra sem hafa háskóla­próf. Hlut­fallið er lægst með fram­halds­skóla­mennt­aðra, 77% þeirra hafa miklar áhyggjur af plast­mengun í haf­in­u. 

Þá hafa kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins minnstar áhyggjur plast­mengun í sjón­um, 66% þeirra hafa mjög miklar eða frekar miklar áhyggjur af mál­inu. Næst koma kjós­endur Við­reisn­ar, en 71% þeirra hafa miklar áhyggjur af plast­meng­un, líkt og 80% kjós­enda Fram­sóknar og 88% kjós­enda Pírata. 93% kjós­enda Bjartrar fram­tíðar hafa miklar áhyggjur og næstum all­ir, eða 98% kjós­enda Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna. 

Íbúar höf­uð­borg­ar­svæðis áhyggju­fyllri en aðrir

68,5% aðspurðra hafa áhyggjur af hækkun á hita­stigi hafs­ins, en 17,4% hafa hvorki miklar né litlar áhyggjur og 14% hafa litlar eða engar áhyggj­ur. Líkt og með plast­mengun er mark­tækur munur á svörum eftir búsetu, menntun og stjórn­mála­skoð­un­um. 

71% íbúa Reykja­víkur hafa miklar áhyggjur af hækk­andi hita­stigi sjávar og 73% fólks í nágranna­sveit­ar­fé­lögum Reykja­vík­ur. Færri, eða 61 pró­sent í öðrum sveit­ar­fé­lög­um, hafa miklar áhyggjur af hækk­andi hita­stigi. Áhyggjur af hækk­andi hita­stigi hafs­ins aukast með auk­inni mennt­un, 57% þeirra sem hafa grunn­skóla­próf hafa miklar áhyggjur af því en 77% þeirra sem hafa háskóla­próf. 

54% kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa áhyggjur af hækk­andi hita­stigi, 63 pró­sent kjós­enda Við­reisnar og 64 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins. 76% kjós­enda Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, Bjartrar fram­tíðar og Pírata hafa miklar áhyggjur af hækk­andi hita­stigi og 92 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna. 

Minni­hluti Sjálf­stæð­is­manna með miklar áhyggjur af súrnun sjávar

Súrnun hafs­ins veldur 65,9% mjög eða frekar miklum áhyggj­um, en 19,5% hvorki miklum né litlum áhyggjur og 14,6% litlum eða engum áhyggj­um. Mark­tækur munur er eftir aldri, en ekki búsetu eða mennt­un. Hins vegar er áfram mark­tækur munur á svörum eftir stjórn­mála­skoð­un­um. Elsti ald­urs­hóp­ur­inn, 65 ára og eldri, hefur mestar áhyggjur af súrnun sjáv­ar, eða 76%. 

48% kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa miklar áhyggjur af súrnun sjáv­ar, 56% kjós­enda Við­reisnar og 60% kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins. 72% kjós­enda Bjartrar fram­tíð­ar, 73% kjós­enda Pírata, 75% Sam­fylk­ing­ar­kjós­enda og 89% kjós­enda Vinstri grænna hafa miklar áhyggjur af súrnun sjáv­ar. 

Könn­unin var gerð 6. til 13. októ­ber, var net­könnun þar sem 1423 af öllu land­inu voru handa­hófs­valdir úr Við­horfa­hópi Gallup. Þátt­töku­hlut­fallið var 59,6%.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None