Óttast óeirðir á kosningadag vegna fullyrðinga um kosningasvindl

Donald Trump
Auglýsing

Stjórn­völd og leið­togar innan bæði Demókra­ta­flokks­ins og Repúblikana­flokks­ins hafa áhyggjur af því að óeirðir og jafn­vel ofbeldi brjót­ist út á kjör­dag í Banda­ríkj­un­um, vegna ummæla Don­alds Trump, for­seta­fram­bjóð­anda Repúblikana, um að svindlað verði í kosn­ing­un­um. Einnig er ótt­ast að ummælin hafi áhrif til lengri tíma á trú fólks á kosn­ing­un­um.

Þetta kemur fram í frétt Was­hington Post. Don­ald Trump hefur í síauknum mæli full­yrt að ein­hvers konar kosn­inga­svindl sé eða verði stundað í kosn­ing­unum í byrjun nóv­em­ber, og hefur hvatt stuðn­ings­menn sína til þess að fylgj­ast vel með kjör­stöðum í borgum eins of Fíla­delf­íu. Þetta gerði hann síð­ast í gær. Þetta ótt­ast ráð­gjafar Hill­ary Clinton að muni þýða að kjós­endum verði ógnað og það gæti haft áhrif sér­stak­lega á kjós­endur hennar sem til­heyra minni­hluta­hóp­um. Því hafa her­búðir Clinton brugðið á það ráð að fá til liðs við sig hund­ruð lög­fræð­inga til þess að fylgj­ast með kjör­stöðum og vernda rétt fólks til að kjós­a. 

„Ég hef miklar áhyggjur af þess­ari orð­ræð­u,“ segir fyrrum borg­ar­stjóri Fíla­delfíu og stuðn­ings­maður Clint­on, Mich­ael Nutt­er, við Was­hington Post. Það sem Trump sé að reyna að gera með ótrú­legum og röngum stað­hæf­ingum um kosn­inga­svindl sé að minnka áhuga fólks á kosn­ing­unum og draga úr þátt­töku. „Hann var ekki að kvarta yfir þessu öllu saman í for­kosn­ingum Repúblikana, þegar hann var að vinna. Þá fannst honum kerfið virka full­kom­lega.“ 

Auglýsing

Hátt­settir Repúblikanar hafa einnig tjáð sig um það að full­yrð­ingar Trump um kosn­inga­svindl séu ekki byggðar á neinum rök­um. Fram­koma hans getur enda haft áhrif á afdrif Repúblik­ana í þing­inu, þar sem þeir eru með meiri­hluta í báðum deild­um. Repúblikanar hafa áhyggjur af því að árásir hans geti líka valdið efa­semdum um sigra sem Repúblikanar muni vinna í kosn­ing­un­um. 

Árásir hans á kosn­inga­kerfið í Banda­ríkj­unum eru af mörgum talin við­brögð hans við því að fylgi hans hefur minnkað og hann hefur átt erfitt upp­dráttar und­an­farnar vik­ur. Hann neitar hins vegar öllum ásök­unum um kyn­ferð­is­lega áreitni og kyn­ferð­is­brot, sem að minnsta kosti níu konur hafa sakað hann um, og segir ásak­an­irnar hluta af sam­sær­inu gegn sér. 

„Auð­vitað er kosn­inga­svindl á stórum skala í gangi á og fyrir kjör­dag. Af hverju neita leið­togar Repúblik­ana því sem er að eiga sér stað? Svo barna­leg­t!“ skrif­aði Trump á Twitt­er-­síðu sína í gær, en þar hefur hann látið fjöld­ann allan af ummælum falla und­an­far­ið. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None