Formaður búvörustarfshóps gekk úr skaftinu

Frestur til að skipa starfshóp um endurskoðun búvörusamninga rann út í gær, án þess að hópurinn hafi verið skipaður. Formaðurinn hætti við og því frestaðist skipan hópsins, segir ráðherra.

gunnar bragi
Auglýsing

Ekki er búið að skipa sam­ráðs­hóp um end­ur­skoðun búvöru­samn­inga, þrátt fyrir að frestur til þess hafi runnið út í gær. Gunnar Bragi Sveins­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, seg­ist í sam­tali við Kjarn­ann gera ráð fyrir því að málið verði klárað á morg­un. Ástæða seink­un­ar­innar sé sú að búið hafi verið að finna for­mann sem svo hafi gengið úr skaft­in­u. 

Til­lagan um skipun sam­ráðs­hóps var sett inn í frum­varpið af atvinnu­vega­nefnd þings­ins til þess að hjálpa til við að koma samn­ing­unum þar í gegn. Hún kvað á um að tryggja ætti aðkomu afurða­stöðva, atvinnu­lífs, bænda, laun­þega og neyt­enda að end­ur­skoðun búvöru­samn­ing­anna, og að þeirri end­ur­skoðun ætti að ljúka eigi síðar en árið 2019. 

Félag atvinnu­rek­enda benti á það í til­kynn­ingu í dag að ekki væri búið að skipa hóp­inn þrátt fyrir að lögin geri ráð fyrir að því ætti að ljúka í gær. „Skemmst er frá því að segja að ekk­ert erindi hefur borist frá atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu um skipan hóps­ins og engin til­kynn­ing birst á vef þess, nú dag­inn eftir að lög­bund­inn frestur ráð­herra til að skipa sam­ráðs­hóp­inn rann út,“ segir í til­kynn­ing­unni. Félag atvinnu­rek­anda hafði verið heitið aðild að sam­ráðs­hópn­um, ásamt öðrum hags­muna­sam­tökum sem höfðu gagn­rýnt verk­lag og inni­hald samn­ing­anna. 

Auglýsing

„Við vorum að þetta sé aðeins hand­vömm hjá ráð­herra og að hóp­ur­inn verði skip­aður á allra næstu dög­um. Menn hljóta að vilja efna lof­orðin um þjóð­ar­sátt og þjóð­ar­sam­tal fyrir kosn­ing­ar,“ sagði Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda, í til­kynn­ing­unn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None