Félag atvinnurekenda fær ekki fulltrúa í nefnd sem endurskoðar búvörusamninga

gunnar bragi sveinsson
Auglýsing

Félag atvinnu­rek­enda fær ekki full­trúa í sam­ráðs­hópi um end­ur­skoðun búvöru­samn­inga, þvert á það sem for­maður atvinnu­vega­nefndar þings­ins hafði boð­að. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Félagi Atvinnu­rek­enda, en fram­kvæmda­stjóri þess, Ólafur Steph­en­sen, hefur sent Gunn­ari Braga Sveins­syni sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra bréf þar sem þess er óskað að þetta verði end­ur­skoð­að. 

Lög­bund­inn frestur til að skipa hóp­inn rann út á þriðju­dag, en ekki var búið að því þá. Félag atvinnu­rek­enda benti á þetta.. Gunnar Bragi Sveins­­son, sjá­v­­­ar­út­­­vegs- og land­­bún­­að­­ar­ráð­herra, sagð­ist þá í sam­tali við Kjarn­ann gera ráð fyrir því að málið yrði klárað í vik­unni. Ástæða seink­un­­ar­innar sé sú að búið hafi verið að finna for­­mann sem svo hafi gengið úr skaft­in­u. 

Í dag var svo til­kynnt að búið væri að skipa for­mann og óska eftir til­nefn­ingum ASÍ/BS­RB, Bænda­sam­tak­anna, Neyt­enda­sam­tak­anna, Sam­taka afurða­stöðva og Sam­taka atvinnu­lífs­ins um full­trúa í hóp­inn. Bænda­sam­tökin fá tvo full­trú­a. 

Auglýsing

Félag atvinnu­rek­enda segir að verið sé að halda félag­inu fyrir utan starfs­hóp­inn, þrátt fyrir að hafa verið leið­andi afl í allri umræðu um aukið frelsi á sviði land­bún­að­ar­mála. Sam­kvæmt búvöru­lög­unum sé félagið líka lög­bund­inn umsagn­ar­að­ili. „Það liggur því fyrir að allir lög­bundnir umsagn­ar­að­ilar sam­kvæmt búvöru­lögum munu eiga sæti í starfs­hópn­um, nema Félag atvinnu­rek­enda.“ 

„Sú ákvörðun ráð­herra að halda mik­il­vægum hags­muna­að­ila þannig utan við sam­ráð, sem átti að stuðla að því að sem flest sjón­ar­mið yrðu leidd sam­an, getur ekki tal­izt góð stjórn­sýsla. FA vekur enn­fremur athygli á því að eins og starfs­hóp­ur­inn verður skip­aður að til­lögu ráð­herra munu ríkið og land­bún­að­ur­inn eiga meiri­hluta í hon­um. Sú gagn­rýni, sem sett var fram af hálfu FA og margra ann­arra hags­muna­sam­taka – og meiri­hluti atvinnu­vega­nefndar tók mark á – var einmitt að ekki gengi að ríkið og land­bún­að­ur­inn vél­uðu ein um mál sem varð­aði jafn­mikla fjár­muni og jafn­víð­tæka hags­muni. Í þessu ljósi fer Félag atvinnu­rek­enda fram á það við ráð­herra að hann end­ur­skoði ákvörðun sína um skipan starfs­hóps­ins.“ 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None