Stjórnvöld mótmæla fordæmalausri auglýsingu aflandskrónueigenda

Iceland Watch Már Guðmundsson
Auglýsing

Ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál fund­aði í morgun með Má Guð­munds­syni seðla­banka­stjóra vegna aug­lýs­inga frá kröfu­haf­varð­hund­inum Iceland Watch, sem birst hafa í íslenskum fjöl­miðlum að und­an­förnu. Í aug­lýs­ing­unum er varað við áhrifum þess að snúa ekki við laga­setn­ingu sem skikkar aflandskrónu­eig­endur til að gefa eftir hluta eigna sinna eða fest­ast ann­ars inn á vaxta­lausum reikn­ingum í Seðla­banka Íslands. 

Í yfir­lýs­ingu frá ráð­herra­nefnd­inni, sem í sitja for­sæt­is­ráð­herra, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, inn­an­rík­is- og utan­rík­is­ráð­herra, er þeim rang­færslum sem birt­ast í aug­lýs­ing­unum mót­mælt. „ Ljóst er að erlendir aðil­ar, sem telja sig hafa hags­muni af því að ráð­stöf­unum um með­ferð aflandskróna verði breytt, standa að baki þessum aug­lýs­ing­um, þar sem einnig er vegið með ósmekk­legum hætti að starfs­heiðri til­tek­inna starfs­manna Seðla­banka Íslands. Ein­stakir stærri aflandskrónu­eig­endur hafa að und­ir­förnu freistað þess að hafa áhrif á alþjóð­legar stofn­an­ir, láns­hæf­is­mats­fyr­ir­tæki og almenna fjöl­miðlaum­fjöllun en orðið lítið ágengt. “

Birtu heil­síður víða

Aug­lýs­ing­arnar sem um ræðir eru frá Iceland Watch, sem rekið er af hug­veit­unni Institute for Liber­ty.

Auglýsing

Auglýsing Iceland Watch.Iceland­Watch.org verk­efnið vakti fyrst athygli hér­­­lendis þegar það keypti birt­ingar á Twitter til að koma boð­­skap sínum á fram­­færi. Aug­­ljóst er að til­­­gang­­ur­inn er að gæta hags­muna erlendra kröf­u­hafa sem neit­uðu að taka þátt í aflandskrón­u­­upp­­­boði Seðla­­banka Íslands í sumar sökum þess að þeim fannst gengið sem þar var í boði fyrir skulda­bréf þeirra ekki nógu hátt. Þess í stað voru eignir þeirra settar inn á vaxta­­lausa reikn­inga. Það var hægt vegna sér­­stakra laga sem Alþingi setti í aðdrag­anda útboð­anna. Laga­­setn­ingin var rök­studd með því að aðgerð­­irnar þættu nauð­­syn­­legar til að stuðla að greiðslu­­jafn­­vægi í íslenska efna­hags­­kerf­inu og verja stöð­ug­­leika lands­ins.

Þann 14. októ­ber síð­ast­lið­inn birt­ust síðan heil­síðu­aug­lýs­ingar í bæði Frétta­blað­inu og Morg­un­blað­inu frá Iceland Watch. Aug­lýs­ing­arnar birt­ust einnig á  á dönsku í dönskum fjöl­miðlum, m.a. við­­skipta­­blað­inu Bör­­sen, og á ensku í banda­rískum fjöl­mið­l­­um.

Í aug­lýs­ing­unni voru Íslend­ingar varaðir við því að mis­muna alþjóða­fjár­fest­um. Þar sagð­i:„Við höfum séð þetta áður­. Þegar kæru­­laus stjórn­­völd fyr­ir­­gera rétt­­ar­­rík­­inu hverfur erlend fjár­­­fest­ing og lands­­menn gjalda fyrir það. Á Íslandi mis­­muna ný lög alþjóð­­legum fjár­­­festum og neyða þá til að selja skulda­bréf sem ­tryggð eru í krónum með miklum afslætti, eða til að láta eignir sínar á reikn­inga sem ber­a enga vext­i. ­Tölum skýrt: Sví­virð­i­­leg ný lög lands­ins mis­­muna fjár­­­festum eftir þjóð­erni þeirra. Frekar en að halda áfram við­ræðum við alþjóð­­lega fjár­­­festa sem reynt hafa að ná ­samn­ingum í góðri trú hefur Ísland stillt þeim upp við vegg.“ 

Ný aug­lýs­ing  með Má í aðal­hlut­verki

Síð­ustu tvo daga hefur Iceland Watch svo birt nýja aug­lýs­ingu í Morg­un­blað­inu. Nú var hún með mynd af Má Guð­munds­syni seðla­banka­stjóra og spurt hver „greiði fyrir spill­ingu og mis­mun­un­ar­reglur á Íslandi“ og sagt að les­endur gerðu það. Þar var einnig spurt hvort Sturla Páls­son, fram­kvæmda­stjóri hjá Seðla­bank­an­um, hafi „notað þekk­ingu sína á nýlega til­kynntri lög­gjöf um gjald­eyr­is­höft sem mis­munar erlendum fjár­festum um að stunda inn­herj­a­við­skipt­i“.

Í aug­lýs­ing­unni var því haldið fram að mis­mun­un­ar­stefna íslenskra íslensku gjald­eyr­is­haft­anna hafi kostað hvern Íslend­ing á bil­inu 1,7 til 3,1 milljón króna. Þetta hafi komið fram í „nýrri rann­sókn“ sem er þó ekki til­tekið hver hafi fram­kvæmt eða hvern­ig. 

Iceland Watch reyndi einnig að fá aug­lýs­ing­una birta í Frétta­blað­inu en blaðið neit­aði að gera það.

Keim­líkt mál­flutn­ingi vog­un­ar­sjóða

Tveir banda­rískir sjóð­ir, Eaton Vance Corp. og Autonomy Capi­­­tal LP, sættu sig ekki við að eignir þeirra hafi verið settar inn á nær vaxta­­­­­lausa reikn­inga í refs­ing­­­­­ar­­­­­skyni fyrir að taka ekki þátt í útboð­un­­um. Þess í stað fólu sjóð­irnir lög­­­­­­­­­manni sínum að kanna grund­­­­­völl fyrir mög­u­­­­­legri máls­höfðun á hendur íslenska rík­­­­­inu auk þess sem þeir hafa kvartað til Eft­ir­lits­­­­­stofn­unar EFTA (ESA) vegna laga­­­­­setn­ingar sem sam­­­­­þykkt voru aðfara­nótt 23. maí síð­­­­­ast­lið­ins, og þeir telja að feli í sér eign­­­­­ar­­­­­upp­­­­­­­­­töku og brot á jafn­­­­­ræð­is­­­­­reglu. Fyrsta skrefið í þeirri við­­­leitni var að fara fram á það við hér­­­aðs­­­dóm Reykja­víkur að sér­­­fræð­ingar verði skip­aðir til að fara yfir lög­­­­­mæti þeirra aðgerða sem fram­­­kvæmdar voru gegn aflandskrón­u­eig­endum með lögum sem sam­­­þykkt voru fyrr á þessu ári. 

Íslenska ríkið hefur reynt að koma í veg fyrir að hér­­­aðs­­­dómur Reykja­víkur skipi sér­­­fræð­inga til að meta hvort ríkið hefði efna­hags­­­legar for­­­sendur fyrir því að neita að skipta aflandskrónum sjóð­anna tveggja á lægra verði en mark­aðs­verði, líkt og Kjarn­inn hefur greint frá

Mál­­flutn­ingur Iceland­Watch.org er keim­líkur mál­­flutn­ingi vog­un­­ar­­sjóð­anna tveggja. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None