Fundur Bjarna, Óttarrs og Benedikts
Auglýsing

Bene­dikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisn­ar, skrifar á Face­book-­síðu sína í kvöld að í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum Við­reisn­ar, Bjartar fram­tíðar og Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafi mönnum orðið ásátt um að breytt vinnu­brögð verði á Alþingi með nýrri rík­is­stjórn, „þannig að breið­ari aðkoma yrði að stórum mál­um, þannig að ólík sjón­ar­mið sem til heilla horfðu fyrir þjóð­ina heyrð­ust snemma í ferl­in­u“. Hann seg­ist ekki vita hvernig við­ræð­unum muni ljúka. Þetta er í fyrsta sinn sem for­maður flokk­anna þriggja sem nú reyna að mynda rík­is­stjórn tjáir sig eftir að form­legar við­ræður hófust á föstu­dag.

Bene­dikt nefnir að vel fari á með þeim Óttarri Proppé, for­manni Bjartar fram­tíð­ar, en flokk­arnir þeirra ákváðu að vera í eins konar banda­lagi þegar kæmi að stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum eftir kosn­ing­arnar 29. októ­ber. „[…] ekki þekki ég marga vænni og skyn­sam­ari menn,“ skrifar Bene­dikt. Það hafi ollið honum von­brigðum að lesa um svika­brigsl Ótt­arrs og hans sjálfs vegna þess að flokkar þeirra væru að „sinna þeirri lýð­ræð­is­legu skyldu sinni að reyna að mynda starf­hæfan meiri­hluta“.

Á samn­ings­fund­unum með Bjarna Bene­dikts­syni, for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafi þeir verið sam­stíga um að leggja til breytt vinnu­brögð. „Ég heyri ekki annað en að Bjarni sé heill í því að vilja hugsa verk­lag uppá nýtt, þannig að virð­ing Alþingis aukist,“ skrifar Bene­dikt.

Auglýsing

Bene­dikt beinir því svo til ann­arra stjórn­mála­manna að þeir skuli bera virð­ingu fyrir sjálfum sér og póli­tískum and­stæð­ingum „með því að nota ekki tor­tryggni, hatur og ofbeldi, allra síst þegar stjórn­mál eru í eðli­legum far­veg­i.“

Enn fremur skrifar hann að hann hafi ekki hug­mynd um hvernig við­ræð­unum muni ljúka en vonar að „þegar upp verður staðið hafi allir hlut­að­eig­andi verið sínum mál­stað trúir og reynt að finna góðar lausnir á ágrein­ings­mál­um. Þá geta allir verið sáttir við sjálfan sig og aðra, hverjar sem nið­ur­stöður verða,“ skrifar Bene­dikt. Færsl­una má sjá hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None