sigmundur_malin_hlin.jpg
Auglýsing

Hlín Ein­ars­dóttir ját­aði brot sín í tengslum við til­raun til að kúga fé út úr þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Sig­mundi Davíð Gunn­laugs­syni, við þing­fest­ingu máls­ins í hér­aðs­dómi í dag. Malín Brand, systir henn­ar, ját­aði hlut­deild í brot­inu en neit­aði sam­verkn­aði. Þetta kemur fram á mbl.­is.

Syst­urnar neit­uðu báðar sök í öðru máli þar sem þær eru ákærðar fyrir fjár­kúgun gegn fyrr­ver­andi sam­starfs­manni Hlín­ar. Hlín sagð­ist vera sak­laus af þeim lið eins og hann væri settur fram. Fram kemur í ákærunni gegn þeim að þær hafi haft 700 þús­und krónur af mann­inum með hót­unum um að Hlín myndi leggja fram kæru hjá lög­reglu fyrir nauðgun ef hann greiddi þeim ekki. Malín ræddi við mann­inn nokkrum sinnum og hún tók við pen­ing­unum í tvennu lag­i. 

Syst­­urnar voru hand­­teknar í aðgerðum lög­­regl­unnar í byrjun júní í fyrra, en þær höfðu, sam­­kvæmt til­­kynn­ingu frá lög­­­reglu, sent bréf heim til Sig­­mundar Dav­­íðs Gunn­laugs­­son­­ar, þáver­andi for­­sæt­is­ráð­herra, og krafist þess að hann greiddi þeim til­­­tekna upp­­hæð. Í ákærunni kemur fram að bréfin hafi verið tvö, hið fyrra var sent til aðstoð­ar­manns Sig­mundar Dav­íðs, Jóhann­esar Þórs Skúla­son­ar, og inn­i­hélt hótun um að birtar yrðu opin­ber­­lega upp­­lýs­ingar um afskipti Sig­­mundar Dav­­íðs af fjár­­hags­­mál­efnum Vef­­press­unar ehf., fjöl­miðla­­sam­­steypu und­ir­ ­stjórn Björns Inga Hrafns­­son­­ar, fyrr­ver­andi unnusta Hlín­­ar. Til að kom­­ast hjá því yrði Sig­­mundur Davíð að greiða 7,5 millj­­ón­ir króna og afhenda þær þriðju­dag­inn 25. maí í fyrra. Ekki kom hins vegar fram í þessu bréfi hvar afhenda ættið féð, og bréfið var ekki opnað fyrr en 1. júní, eftir að syst­­urnar höfð­u verið hand­­tekn­­ar.

Auglýsing

Í milli­­­tíð­inni hafði Hlín póst­­lagt annað bréf til Sig­­mund­ar Da­víðs, en stílað á eig­in­­konu hans, Önnu Sig­­ur­laugu Páls­dótt­­ur. Í seinna bréf­inu var búið að hækka fjár­­hæð­ina í átta millj­­ónir króna og með því fylgdu „fyr­ir­­mæli um af­hend­ing­­ar­máta, gps-hnit og ljós­­myndir af afhend­ing­­ar­­staðn­­um, sem var við Krýsu­vík­­­ur­­veg í Hafn­­ar­­firð­i,“ að því er segir í á­kærunni á hendur systr­un­­um. Bréfið barst á heim­ili þáver­and­i ­for­­sæt­is­ráð­herra þann 28. maí í fyrra, og degi síðar vor­u ­syst­­urnar hand­­teknar við Krýsu­vík­­­ur­­veg, eftir að þær höfð­u ­sótt pakkn­ingu í tösku sem þær töldu inn­i­halda umkrafða greiðslu. Fram kemur í ákærunni að Hlín hafi ritað bréfin en Malín prent­að þau út.

Í til­­kynn­ingu lög­­regl­unn­ar í fyrra kom jafn­­framt fram að þær hefðu játað við yfir­­heyrslu að hafa sent bréfið heim til þáver­andi for­­sæt­is­ráð­herra. 

Það var svo í kjöl­far þess að til­raunin til fjár­kúg­unar gegn for­sæt­is­ráð­herra komst í hámæli sem hinn mað­ur­inn kærði syst­urnar til lög­reglu, og Hlín lagði fram kæru á hendur mann­inum fyrir nauðg­un. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None