bensin_olia_eldsneyti-2.jpg
Auglýsing

Skelj­ungur birti í dag skrán­ing­ar­lýs­ingu fyrir félagið þar sem fram kemur að það almennt útboð á hluta­bréfum þess eigi að hefj­ast mánu­dag­inn 28. nóv­em­ber næst­kom­andi. Það á að standa til mið­viku­dags­ins 30. nóv­em­ber og í boði eru 23,5 pró­sent hlutur í félag­inu. Sá hlutur gæti hækkað upp í 31,5 pró­sent ef eft­ir­spurn verður mik­il. Gangi útboðið stendur til að skrá hluta­bréf í Skelj­ungi á markað í des­em­ber. Þetta kemur fram í skrán­ing­ar­lýs­ing­unni.

Rúmt ár er síðan að Skelj­ungur til­kynnti að félagið stefndi að því að verða skráð á markað síðla árs 2016. Í dag er Skelj­ungur að mestu leyti í eigu líf­eyr­is­­sjóða og Arion banka. Sá hópur keypti fyr­ir­tækið og fær­eyska dótt­­ur­­fé­lag þess P/F Magn árið 2013. SÍA II, sjóður sem rek­inn er af sjóðs­­stýr­inga­­fé­lag­inu Stefni, dótt­­ur­­fé­lagi Arion banka, leiddi kaup­in. Morg­un­­blaðið sagði á sínum tíma að kaup­verðið fyrir Skelj­ung hafi verið yfir fjórir millj­­arðar króna. Auk þess hafi 3,95 millj­­arðar króna verið greiddir fyrir fær­eyska félag­ið. Sam­tals var því greitt um átta millj­­arðar króna fyrir félögin tvö.

Rekstur Skelj­ungs hefur gengið mjög vel á und­an­­förnum árum. Fyr­ir­tækið hagn­að­ist til að mynda um tæpan 1,5 millj­­arð króna á árunum 2010 og 2011. Í febr­­úar 2012 end­­ur­fjár­­­magn­aði Arion banki allar skuldir móð­­ur­­fé­lags Skelj­ungs sem greiddi með því upp allar skuldir sínar við Íslands­­­banka. Skelj­ungur hagn­að­ist um 571 milljón króna árið 2014 og á því ári námu tekjur fyr­ir­tæk­is­ins 42,8 millj­­örðum króna. Í fyrra dróst hagn­að­ur­inn tölu­vert saman og var 273 millj­ónir króna. Sömu­leiðis dróg­ust tekjur saman og voru 36,8 millj­arðar króna, en hröð lækkun á olíu­verði hefur þar spilað stærsta rullu. Það sem af er ári hafa tekj­urnar tekið vel við sér og voru hærri á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2016 en allt árið í fyrra, eða 36,9 millj­arðar króna. Hagn­aður það sem af er ári er 1,1 millj­arður króna.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None